30 september 2026

Heilagur Híerónýmus – prestur, biblíuþýðandi og kirkjufræðari - minning 30. september

Heilagur Híerónýmus, prestur og kirkjufræðari

Hinn 30. september minnist kirkjan heilags Híerónýmusar, eins helsta fræðimanns fornkirkjunnar. Hann var eldhugi að eðlisfari, en jafnframt maður bænar og íhugunar sem helgaði stóran hluta ævi sinnar því að þýða, rannsaka og skýra heilaga ritningu. Verk hans hafa mótað kristna hefð allt fram á okkar daga og hann er einn þeirra manna sem kirkjan heiðrar sem kirkjufræðara.[1]

29 september 2026

Engladagur, hátíð hinna heilögu höfuðengla Mikaels, Gabríels og Rafaels - 29. september


Í dag, 29. september, fagnar kirkjan Engladegi, hátíð hinna heilögu höfuðengla Mikaels, Gabríels og Rafaels. Hátíðin hefur verið haldin frá fornu fari, þegar kristnir menn reistu kirkjur og helgidóma þeim til dýrðar og leituðu eftir vernd þeirra. Þeir eru þjónar Guðs og sendiboðar, sem ritningarnar kynna sem tákn um návist og kraft Drottins.1

28 september 2026

Heilagur Lárentíus Ruiz og félagar píslarvottar - minning 28. september

Heilagur Lárentíus Ruiz

Í fangelsi í Japan syngja kristnir fangar sálma. Þeir eru langt frá öryggi heimila sinna og vita að þeirra bíða þjáningar og dauði. Samt hljómar lofgjörðin. Jóhannes Páll II rifjaði þennan söng upp þegar hann tók píslarvottana frá Nagasaki í tölu blessaðra árið 1981: þeir höfðu sungið Drottni sálma bæði í fangavistinni og við dauða sinn. Meðal þeirra var Lárentíus Ruiz, skrifari frá Manila, eiginmaður og þriggja barna faðir. [2]

26 september 2026

Heilagir Kosmas og Damíanus - minning 26. september

Hinir heilögu Kosmas og Damíanus

Hinn 26. september minnist kaþólska kirkjan hinna heilögu Kosmasar og Damíanusar, lækna og píslarvotta. Minning þeirra beinir sjónum okkar að þjónustu við sjúka og þeirri köllun kristins manns að láta trúna bera ávöxt í kærleiksverkum. Í arfleifð kirkjunnar lifa þeir sem menn er helguðu hæfileika sína Guði og náunganum. [1]

23 september 2026

Heilagur Píus frá Pietrelcina - minning 23. september

Heilagur Píus frá Pietrelcina (Padre Pio)

Francesco Forgione fæddist 25. maí 1887 í Pietrelcina á Ítalíu, inn í fátæka sveitafjölskyldu. Frá unga aldri bar hann innra með sér löngun til að ganga í trúarreglu. Sextán ára að aldri gekk hann í nýliðaþjálfun Kapúsínareglunnar og tók sér nafnið bróðir Píus (Fra Pio). Hann var vígður til prests árið 1910 og flutti sex árum síðar í klaustrið Santa Maria delle Grazie í San Giovanni Rotondo. Þar helgaði hann sig sérstaklega skriftamálunum og sat við að hlýða skriftum klukkustundum saman dag hvern. Hápunktur þjónustu hans var þó altarisgangan. Sjálfur lýsti hann sér sem „fátækum bróður sem biður“ og sagði að bænin væri „okkar besta vopn“ og „lykill til að opna hjarta Guðs“.[1]

21 september 2026

Heilagur Matteus postuli og guðspjallamaður – hátíð 21. september

Köllun heilags Matteusar. Glerlistaverk byggt á hinu fræga málverki Caravaggios Köllun heilags Matteusar (1599–1600). Kristur kallar Matteus frá tollborðinu og ljós náðarinnar rýfur myrkrið: „Miskunnsemi vil ég, ekki fórnir“ (Mt 9,13).

Við Galíleuvatn, líklega í Kapernaum, sat dag einn tollheimtumaður við störf sín. Matteus hét hann og tilheyrði stétt manna sem naut lítillar virðingar meðal Gyðinga. Tollheimtumenn störfuðu innan skattkerfis rómverska valdsins og voru þess vegna gjarnan álitnir samverkamenn hernámsmanna. Kerfið bauð auk þess upp á misnotkun og auðgun á kostnað annarra. Það kemur því ekki á óvart að í guðspjöllunum eru tollheimtumenn iðulega nefndir í sömu andrá og syndarar.[1][2] En einmitt þennan mann sá Jesús.

19 september 2026

Heilagur Janúaríus, biskup og píslarvottur - minning 19. september

Heilagur Janúaríus

Heilagur Janúaríus (lat. Januarius, ít. San Gennaro) er biskup og píslarvottur frá upphafi fjórðu aldar og verndardýrlingur Napólí. Minning hans er órjúfanlega tengd einu kunnasta trúarfyrirbæri kaþólskrar hefðar: ampúlum sem sagðar eru geyma blóð hans og þar sem dökkt og þykkt innihald verður við ákveðin tækifæri fljótandi. Fyrir Napólíbúa er þetta ekki aðeins forvitnilegt fyrirbæri heldur tákn sem hefur tengt borgina, dýrlinginn og trú hennar saman öldum saman.[1][3]

18 september 2026

Heilagur Jósef frá Cupertino – fransiskani og furðuverk Guðs - minning 18. september

Heilagur Jósef frá Cupertino

Heilagur Jósef frá Cupertino
(1603–1663) er einn sérstæðasti dýrlingur fransiskana. Hann átti erfitt með nám, þótti lítt hæfur til margra þeirra starfa sem honum voru falin og leið hans inn í reglulífið var langt frá því að vera greið. En undir þessu látlausa yfirbragði bjó djúpt bænalíf, auðmýkt og óvenjuleg einlægni í trú. Frægastur varð hann fyrir það algleymisástand og svif frá jörðu sem fjölmargar frásagnir samtímamanna greina frá. Af þeim sökum hefur hann stundum verið nefndur „fljúgandi munkurinn“ og síðar orðið verndardýrlingur flugmanna og flugfarþega.1

17 september 2026

Heilagur Albert patríarki af Jerúsalem – sáttasemjari og löggjafi Karmels - hátíð 17. september

Heilagur Albert patríarki í Jerúsalem

Heilagur Albert, patríarki af Jerúsalem, var uppi á tímum þegar trú, stjórnmál og hernaðarátök fléttuðust náið saman. Hann gegndi ábyrgðarstörfum í kirkjunni, miðlaði málum milli stríðandi aðila og lauk ævi sinni með sviplegum hætti árið 1214. Varanlegasta arfleifð hans varð þó stuttur texti sem hann samdi fyrir einsetumenn á Karmelfjalli: lífsreglan sem enn er grundvallarrit Karmelfjölskyldunnar. [1–3]

Heilög Hildegard frá Bingen, mey og kirkjufræðari - minning 17. september

Heilög Hildegard frá Bingen – mey og kirkjufræðari

Í dag, 17. september, heldur Kirkjan minningu heilagrar Hildegardar frá Bingen, meyjar og kirkjufræðara. Hildegard var ein merkasta kona miðalda, benediktínsk nunna og abbadís, dulspekingur, guðfræðingur, rithöfundur, skáld, tónskáld og fræðikona. Hún fæddist árið 1098 og lést 17. september 1179, og er minningardagur hennar því haldinn á dánardegi hennar.

16 september 2026

Heilagir Kornelíus páfi og Kýpríanus biskup píslarvottar – minning 16. september

Heilagir Kornelíus páfi og Kypríanus biskup, píslarvottar

Í dag minnist Kirkjan tveggja mikilla hirða þriðju aldar, heilags Kornelíusar páfa og heilags Kýpríanusar, biskups í Karþagó. Þeir störfuðu hvor á sínum stað, annar í Róm og hinn í Norður-Afríku, en vinátta þeirra og bréfaskipti urðu mikilvægt tákn um einingu Kirkjunnar á tímum þegar hún stóð frammi fyrir ofsóknum utan frá og alvarlegum deilum innan frá. Báðir urðu þeir að lokum píslarvottar fyrir Krist.

15 september 2026

Harmkvæli Maríu meyjar – minning 15. september



Í dag, 15. september, heldur Kirkjan minningu harmkvæla Maríu meyjar. Litúrgískur litur dagsins er hvítur. Dagsetningin er engin tilviljun. Í gær, 14. september, héldum við hátíð upphafningar hins heilaga kross og beindum sjónum okkar að krossi Krists. Í dag horfum við aftur til Golgata, en nú sérstaklega til móðurinnar sem stendur undir krossinum.1
„Stóðu hjá krossi Jesú móðir hans og móðursystir hans, María kona Klópa, og María Magdalena. Þegar Jesús sá móður sína og lærisveininn, sem hann elskaði, standa þar, sagði hann við móður sína: ‚Kona, sjá son þinn.‘ Síðan sagði hann við lærisveininn: ‚Sjá móður þína.‘ Og frá þeirri stundu tók lærisveinninn hana heim til sín.“ (Jóh 19.25–27)

14 september 2026

Upphafning hins heilaga kross – Krossmessa á hausti

Altaristaflan í Kirkju hins heilaga Kross á Selfossi er eftir Unni Guðnýju Maríu Gunnarsdóttur og ber heitið Ave Crux, Spes unica – „Heill sé þér, heilagi kross, eina von okkar.“

Í dag, 14. september, heldur Kirkjan hátíð upphafningar hins heilaga kross, sem á Íslandi hefur frá fornu fari verið nefnd Krossmessa á hausti. Hátíðin beinir sjónum okkar að sjálfu tákni kristinnar trúar: krossinum sem Kristur dó á og varð fyrir okkur tákn hjálpræðis, lífs og sigurs. Lestrar dagsins eru úr 4. Mósebók 21,4b–9, Sálmi 78 og Jóhannesarguðspjalli 3,13–17. Þeir leiða okkur inn í hina miklu þversögn trúarinnar: að tæki aftöku og niðurlægingar skuli verða tákn lífs og dýrðar. Jesús segir við Nikódemus:
„Eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á Mannssonurinn að verða upp hafinn, svo að hver sem trúir hafi eilíft líf í honum.“ (Jh 3,14–15)

12 september 2026

Hið heilaga nafn Maríu – valkvæð minning 12. september


Í dag minnist kirkjan hins heilaga nafns Maríu, móður Jesú. Nafn hennar hefur um aldir verið kristnum mönnum tákn trúar, vonar og trausts á Guð. Heilagur Bernharður frá Clairvaux líkti Maríu við „stjörnu hafsins“ sem lýsir þeim sem sigla um ólgusjó lífsins og bendir þeim leiðina til Krists.

Blessuð María af Jesú - minning 12. september

Blessuð María af Jesú

Í dag, 12. september, minnist Karmelreglan hinnar blessuðu Maríu af Jesú (María López de Rivas), meyjar í karmelítaklaustrinu í Toledo á Spáni. Hún var nákomin heilagri Teresu af Jesú kirkjufræðara og vann með henni að endurnýjun Karmels á Spáni á 16.–17. öld. Hún afsalaði sér lífi í forréttindum og valdi einfaldleika, bæn og kyrrláta þjónustu. Í sumum samfélögum karmelíta er minningardagur hennar haldinn 11. september; María lést 13. september 1640. Í Árbók kaþólsku kirkjunnar á Íslandi er minningardagurinn skráður 12. september, og miðum við við það hér.

10 september 2026

Kirkja hins heilaga Kross vígð á Selfossi – lifandi kirkja rís á gömlum helgislóðum

Altaristaflan er eftir Unni Guðnýju Maríu Gunnarsdóttur og ber heitið 
Ave Crux, Spes unica
– „Heill sé þér, heilagi kross, eina von okkar.“

Laugardagurinn 5. september 2026 verður lengi í minnum hafður í sögu kaþólsku kirkjunnar á Suðurlandi. Þann dag vígði Davíð Bartimej Tencer biskup hina nýju Kirkju hins heilaga Kross á Selfossi að viðstöddu miklu fjölmenni.

Kirkjan stendur við Móaveg, skammt frá bökkum Ölfusár. Samkvæmt upplýsingum Reykjavíkurbiskupsdæmis komu um 600 manns saman til vígslunnar. Sama dag fór jafnframt fram æskulýðsdagur biskupsdæmisins á Selfossi í blíðskaparveðri.

Athöfnin hófst fyrir utan kirkjuna þar sem Davíð biskup og Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, klipptu á borða við inngang kirkjunnar. Að því loknu hófst sjálf vígsluathöfnin og hátíðarmessan.

09 september 2026

Heilagur Pétur Claver prestur og jesúíti - minning 9. september

Heilagur Pétur Claver prestur og jesúíti

Í dag, 9. september, minnist kirkjan heilags Péturs Claver, jesúítaprests sem helgaði nær fjörutíu ár af lífi sínu þjónustu við afríska þræla sem fluttir voru nauðugir yfir Atlantshafið til Cartagena í núverandi Kólumbíu. Hann kallaði sjálfan sig „þræl Afríkumanna að eilífu“ og lét þau orð verða að ævistarfi. Þegar þrælaskipin lögðust að bryggju í Cartagena beið Pétur ekki eftir því að fólkið kæmi til hans. Hann gekk sjálfur niður í dimmar og loftlausar lestarnar þar sem hundruð manna höfðu verið hlekkjuð saman eftir hræðilega siglingu yfir Atlantshafið. Með sér hafði hann mat, lyf og það sem hann gat aflað til að lina þjáningar þeirra. Áður en hann talaði við fólkið um Guð vildi hann sýna því kærleika Guðs í verki.

08 september 2026

Fæðing heilagrar Maríu meyjar – hátíð 8. september

Fæðing heilagrar Maríu meyjar

Í dag, 8. september, fagnar kirkjan einni af elstu Maríuhátíðunum: fæðingu heilagrar Maríu meyjar. Þessi dagur er tákn vonar og gleði, þar sem með fæðingu hennar nálgast sú stund þegar Guð sjálfur kemur í heiminn í mannsmynd.

07 september 2026

Heilög Regína, mey og píslarvottur - minning 7. september

Heilög Regína mey og píslarvottur

Í dag, 7. september, minnist kirkjan heilagrar Regínu, ungrar meyjar og píslarvotts frá 3. öld. Um ævi hennar vitum við ekki mikið með vissu, en minning hennar hefur lifað í kirkjunni um aldir og dýrkun hennar á sér mjög gamlar rætur í Frakklandi.

05 september 2026

Heilög Móðir Teresa frá Kalkútta – minning 5. september

Heilög móðir Teresa frá Kalkútta stofnandi Kærleiksboðberanna (Missionaries of Charity)

„Ég kynni ykkur voldugustu konu heims.“ Þannig kynnti Pérez de Cuéllar, þáverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Móður Teresu frá Kalkútta þegar hún steig á svið á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 26. október 1985. Sjálfri fannst henni þessi lýsing óþægileg. Hún kallaði sig frekar „blýantstubb í höndum Guðs.“

04 september 2026

Heilög Rósalía mey frá Palermo – minning 4. september

Heilög Rósalía frá Palermó

Heilög Rósalía (um 1125–1160) er verndardýrlingur borgarinnar Palermó á Sikiley. Hún er kölluð La Santuzza („litla heilaga“) og er minnst 4. september. Líf hennar var hulið í einveru og bæn, en öldum eftir dauða hennar varð hún tákn vonar fyrir heila borg á tímum mikillar neyðar. [1]

03 september 2026

Heilagur Gregoríus mikli – páfi og kirkjufræðari - Minning 3. september

Heilagur Gregoríus mikli, páfi og kirkjufræðari

Heilagur Gregoríus mikli (um 540–604) var páfi á tíma mikilla atburða og persóna hans markaði djúp spor í sögu kirkjunnar. Hann er talinn einn af hinum fjórum miklu kirkjufræðurum Vesturkirkjunnar ásamt hinum heilögu Ambrósíusi, Híerónýmusi og Ágústínusi. Hann var leiðtogi sem sameinaði mikla skipulagshæfileika, djúpa trú og umhyggju fyrir fátækum, sjúkum og þeim sem ekki þekktu Krist.

02 september 2026

Blessaður Louis-Joseph François og félagar, píslarvottar – minning 2. september

Blessaður Louis-Joseph François og félagar

Í dag, 2. september, minnist Vinsentsfjölskyldan blessaðs Louis-Joseph François og félaga hans, presta úr Reglu trúboða heilags Vinsents af Páli sem létu lífið á tímum frönsku byltingarinnar. Þeir voru ekki hermenn og börðust ekki gegn byltingunni með vopnum. Átök þeirra snerust um samviskuna: hvort prestur gæti svarið eið sem hann taldi ósamrýmanlegan trú sinni og samfélagi við kirkjuna. Louis-Joseph François var einn þeirra sem svöruðu þeirri spurningu með lífi sínu.

Heilagur Zenon – píslarvottur frá Níkomedíu - Minning 2. september

Hl. Zenon ásamt sonum sínum, Concordíusi og Þeódórusi

Heilagur Zenon var kristinn píslarvottur í Níkomedíu í Litlu-Asíu, þar sem nú er borgin İzmit í Tyrklandi. Um ævi hans vitum við lítið með vissu, en nafn hans hefur varðveist í píslarvottatölum kirkjunnar og minning hans er haldin 2. september.

01 september 2026

Heilagur Egidíus einsetumaður - minning 1. september

Heilagur Egidíus einsetumaður og hindin

Í dag, 1. september, minnist kirkjan heilags Egidíusar, sem á latínu nefnist Aegidius og er víða þekktur undir nöfnunum Giles, Gilles eða Egidio. Hann var einsetumaður eða munkur sem virðist hafa starfað í sunnanverðu Frakklandi á fyrstu öldum miðalda. Um ævi hans vitum við lítið með fullri vissu, en minning hans varð ein sú útbreiddasta meðal dýrlinga miðalda.

Heilög Teresía Margrét af hinu alhelga Hjarta Jesú - minning 1. september

Heilög Teresía Margrét af hinu alhelga Hjarta Jesú

Heilög Teresía Margrét af hinu alhelga Hjarta Jesú (1747–1770) var Karmelnunna sem lifði stutta ævi en skildi eftir sig djúp andleg áhrif. Hún fæddist sem Anna Maria Redi í Arezzo á Ítalíu og ólst upp í trúuðu og velmegandi umhverfi. Hún sýndi snemma guðræknislega köllun og gekk sextán ára gömul í Karmelregluna í Flórens.

Heilög Margrét María Alacoque nunna – minning 16. október

Hið alhelga hjarta Jesú og heilög Margrét María Alacoque Heilög Margrét María Alacoque (1647–1690) er ein þeirra kvenna sem hafa haft djúps...