![]() |
| Heilagur Híerónýmus, prestur og kirkjufræðari |
Hinn 30. september minnist kirkjan heilags Híerónýmusar, eins helsta fræðimanns fornkirkjunnar. Hann var eldhugi að eðlisfari, en jafnframt maður bænar og íhugunar sem helgaði stóran hluta ævi sinnar því að þýða, rannsaka og skýra heilaga ritningu. Verk hans hafa mótað kristna hefð allt fram á okkar daga og hann er einn þeirra manna sem kirkjan heiðrar sem kirkjufræðara.[1]
Æviágrip
Heilagur Híerónýmus – Eusebius Sophronius Hieronymus – fæddist um miðja 4. öld, líklega um árið 347, í Strídon á landamærum Dalmátíu og Pannóníu. Nákvæm staðsetning bæjarins er ekki lengur þekkt. Eldri heimildir hafa talið móðurmál hans illirískt, en það er ekki nægilega öruggt til að fullyrða um það. Hitt er ljóst að Híerónýmus varð frá unga aldri rækilega mótaður af latneskri menntun og bókmenntahefð.[1][2]
Foreldrar hans létu sér annt um menntun hans og ungur var hann sendur til Rómar. Þar lærði hann meðal annars hjá hinum kunna málfræðingi Aeliusi Donatusi og sökkti sér niður í latneskar bókmenntir, mælskulist og heimspeki. Hann varð afburða latínumaður og aflaði sér jafnframt góðrar kunnáttu í grísku, sem síðar átti eftir að verða honum ómetanleg við rannsókn Ritningarinnar.[1][2]
Híerónýmus lýsti síðar æskuárum sínum af mikilli sjálfsgagnrýni. Hann var lífsglaður ungur námsmaður og heillaðist mjög af hinum klassísku rómversku höfundum, ekki síst Cíceró. Hann var skírður á fullorðinsárum í Róm og trúarlíf hans varð smám saman æ fyrirferðarmeira.
„Þú ert fylgismaður Cícerós, ekki Krists“
Einn þekktasti atburðurinn sem Híerónýmus segir sjálfur frá varð þegar hann var veikur af hita. Í draumi eða sýn fannst honum hann standa frammi fyrir dómstóli Guðs. Þegar hann sagðist vera kristinn fékk hann hið harða svar:
„Þú lýgur. Þú ert fylgismaður Cícerós, ekki Krists.“[3]
Frásögnin sýnir vel þá innri spennu sem Híerónýmus fann milli ástar sinnar á klassískum bókmenntum og köllunarinnar til að helga líf sitt Kristi. Hann yfirgaf þó aldrei þann menningarlega og málfræðilega lærdóm sem hann hafði öðlast. Þvert á móti varð þessi menntun eitt helsta verkfæri hans þegar hann sneri sér af fullum krafti að rannsóknum á Ritningunni.
Um tíma lagði Híerónýmus stund á strangt einsetulíf í eyðimörkinni í Kalkis í Sýrlandi. Þar hóf hann einnig nám í hebresku. Síðar var hann vígður prestur í Antíokkíu, þó með því skilyrði að hann fengi áfram að lifa lífi sem helgað væri fræðum og meinlæti. Hann dvaldi einnig í Konstantínópel og kynntist þar meðal annars heilögum Gregoríusi frá Nazianz.[1][2]
Árið 382 kom Híerónýmus aftur til Rómar. Þar starfaði hann náið með Damasusi páfa og sinnti meðal annars ritara- og bréfaskriftastörfum fyrir hann. Damasus fól honum að endurskoða latneskan texta guðspjallanna með grísk handrit til hliðsjónar. Þetta varð upphafið að því mikla biblíufræðistarfi sem síðar tengdist nafni Híerónýmusar og Vulgötunni.[1][4]
Betlehem, Pála og klaustrin
Eftir dauða Damasusar árið 384 varð staða Híerónýmusar í Róm erfiðari. Beinskeytt framkoma hans og hörð gagnrýni hafði aflað honum bæði vina og andstæðinga. Árið 385 yfirgaf hann Róm og hélt austur á ný.
Skömmu síðar komu Pála, dóttir hennar Eustókíum og fleiri rómverskar konur austur. Pála var auðug rómversk aðalskona sem eftir lát eiginmanns síns hafði helgað sig æ meira bænalífi, meinlæti og þjónustu við fátæka. Þær ferðuðust um Landið helga og Egyptaland áður en Híerónýmus, Pála og félagar þeirra settust að í Betlehem.[2][5]
Með fjármunum Pálu risu þar klaustur og gestahús. Híerónýmus segir sjálfur í hinu langa minningarbréfi sínu um Pálu, Epistula 108, að hún hafi fyrst búið við fremur frumstæð skilyrði meðan verið var að reisa byggingarnar. Þegar starfið hafði tekið á sig fasta mynd var þar karlaklaustur undir leiðsögn Híerónýmusar, en Pála skipti hinum fjölmörgu konum sem höfðu safnast þangað í þrjú klaustursamfélög. Þær unnu og mötuðust í sínum samfélögum en komu saman til sálmasöngs og bænar.[5]
Auk klaustranna lét Pála reisa gestahús fyrir pílagríma. Híerónýmus tengir þá þjónustu fallega við frásögn fagnaðarerindisins um að María og Jósef hafi ekki fundið rúm í gistihúsi þegar Kristur fæddist í Betlehem.[5]
Þarna varð til merkileg miðstöð bænar, fræðistarfa, kennslu og þjónustu við pílagríma. Fjárhagslegur og skipulagslegur stuðningur Pálu skipti miklu fyrir það umhverfi sem gerði Híerónýmusi kleift að helga sig ritstörfum sínum. Um leið var starfið ekki verk eins manns. Afritun handrita, samanburður texta, bréfaskipti og samráð við aðra fræðimenn voru nauðsynlegir þættir þess.[4]
Pála lést árið 404. Híerónýmus syrgði hana mjög og samdi um hana Epistula 108, eitt merkasta minningarrit sitt. Þar lýsir hann meðal annars örlæti hennar, meinlætalífi og þeirri miklu fjármunagjöf sem hún lagði til fátækra, pílagríma og klaustursamfélaganna. Eustókíum hélt síðan áfram starfinu í Betlehem.[5]
Sögulegt samhengi
Fræðistörf Híerónýmusar í Betlehem fóru fram á miklum umbrotatímum. Eftir dauða Theodosiusar I árið 395 var stjórn Rómaveldis varanlega skipt milli austur- og vesturhluta, þótt menn litu enn á það sem eitt rómverskt heimsveldi. Vesturhlutinn varð fyrir sívaxandi þrýstingi og þegar Alarik og Vestgotar rændu Róm árið 410 varð Híerónýmus harmi sleginn. Í bréfum hans má finna sterka tilfinningu fyrir því að heimur sem virtist óhagganlegur væri að bresta.[1][2]
Betlehem gaf honum engu að síður fasta starfsstöð um áratugaskeið, en lífið þar var ekki alltaf friðsælt. Trúfræðilegar deilur voru harðar og undir lok ævi Híerónýmusar urðu klaustursamfélögin fyrir ofbeldisfullri árás í tengslum við átökin um Pelagíanisma. Klausturbyggingar voru brenndar, fólk sætti ofbeldi og einn djákni var drepinn. Híerónýmus og þeir sem með honum voru þurftu að leita skjóls.[2][6]
Fræðistarf hans fór því ekki fram í einangruðum friði heldur mitt í trúarlegum, menningarlegum og pólitískum umbrotum síðfornaldar.
Vinna við Vulgötu
Afrek Híerónýmusar við rannsókn og þýðingu Biblíunnar er eitt hið mesta í sögu vestrænnar kristni. En rétt er að gera greinarmun á þeim mismunandi þáttum verksins. Í Róm endurskoðaði hann latneskan texta guðspjallanna með grísk handrit til hliðsjónar. Í Betlehem tók hann síðan að sér hið mikla verkefni að þýða stóran hluta Gamla testamentisins úr hebresku yfir á latínu.[1][4]
Híerónýmus lagði sérstaka áherslu á það sem hann kallaði Hebraica veritas – hinn hebreska sannleika textans. Á þeim tíma var Septuaginta, hin forna gríska þýðing Gamla testamentisins, mjög rótgróin í kristinni notkun. Sú ákvörðun hans að leita einnig beint til hebreska textans var því bæði fræðilega djörf og umdeild.[1][4]
Hebreskuna hafði hann ekki lært frá barnæsku. Hann lagði mikla vinnu í námið og leitaði aðstoðar gyðinglegra kennara og fræðimanna. Þannig gat hann borið saman hebreskan texta, grískar þýðingar og þær eldri latnesku þýðingar sem við köllum nú Vetus Latina.
Hann hafði að sjálfsögðu ekki þau hjálpargögn sem nútíma biblíufræðingar hafa – gagnagrunna, ljósmyndir af handritum, rafrænar orðabækur og gagnrýnar textaútgáfur – en hann hafði aðgang að handritum, eldri þýðingum og fræðilegri hefð fornaldar. Hann nýtti einnig verk Origenesar og Hexapla, hið mikla samanburðarverk hans um texta Gamla testamentisins.[1][2]
Það er einnig mikilvægt að sjá að starf Híerónýmusar fór fram í samfélagi. Frans páfi lagði sérstaka áherslu á þetta í postullega bréfinu Scripturae Sacrae affectus árið 2020. Þar bendir hann á að fræðistarf Híerónýmusar hafi verið ávöxtur samvinnu: afritunar og samanburðar handrita, bréfaskipta, umræðu og ráðgjafar.[4]
Híerónýmus var miðpunktur þessa starfs og bar ábyrgð á eigin þýðingum og skýringum, en starfaði ekki í tómarúmi. Umhverfis hann voru afritarar, lærisveinar og samstarfsfólk, auk þeirra grískumælandi og hebreskumælandi fræðimanna sem hann leitaði til. Verk hans varð þannig merkilegur fundarstaður latneskrar, grískrar og hebreskrar lærdómshefðar.
Ekki varð það sem við köllum Vulgötu til sem ein fullgerð bók úr hendi Híerónýmusar. Þýðingar hans og endurskoðanir runnu saman við aðra latneska biblíutexta og með tímanum varð til sú latneska Biblía sem nefnd var Vulgata, „hin almenna“ eða útbreidda útgáfa. Áhrif hennar á guðfræði, helgihald, bókmenntir og menningu Vesturlanda urðu gríðarleg.[1][4]
Með áherslu sinni á að leita aftur til grísku og hebresku textanna varð Híerónýmus snemma öflugur fulltrúi þeirrar fræðilegu hugsunar að leita bæri til elstu aðgengilegu heimilda. Mörgum öldum síðar varð ad fontes – „aftur til uppsprettnanna“ – eitt af einkunnarorðum húmanista endurreisnartímans.
„Vanþekking á Ritningunni er vanþekking á Kristi“
Í formála sínum að skýringum við Jesajabók segir Híerónýmus með óvenjulega skýrum hætti hvers vegna rannsókn Ritningarinnar skipti hann svo miklu máli. Þetta var ekki aðeins fræðileg leit að réttum orðum og merkingu textans. Að baki henni var sú sannfæring að í Ritningunni mætum við Kristi sjálfum.
Í Tíðabænabók kirkjunnar er lesinn 30. september kafli úr þessum formála:
„Ég útlista eins og mér ber að gjöra og fylgi boði Krists: „Rannsakið Ritningarnar,“ og „leitið og þér munuð finna.“ Kristur segir ekki við mig það sem hann sagði við Gyðingana: „Þér villist því að þér þekkið ekki Ritningarnar né mátt Guðs.“
Því ef, eins og Páll segir, að Kristur er kraftur Guðs og speki Guðs og ef maðurinn, sem þekkir ekki Ritninguna, þekkir ekki kraft og speki Guðs þá er vanþekking á Ritningunni vanþekking á Kristi.“[7]
Hér er komin hin fræga setning Híerónýmusar í sínu rétta samhengi: „Vanþekking á Ritningunni er vanþekking á Kristi.“
Hann heldur síðan áfram og útskýrir hvers vegna Jesajabók skipar svo sérstakan sess í huga hans. Jesaja sé ekki aðeins spámaður heldur að vissu leyti einnig „guðspjallamaður og postuli“, því í bók hans sér Híerónýmus fyrirboða fæðingar Krists, verka hans, dauða, greftrunar og upprisu.
Híerónýmus segir:
„Enginn skyldi halda að ég ætli að útskýra allt viðfangsefni þessarar miklu Ritningarbókar í einni stuttri ræðu þar sem hún geymir alla leyndardóma Drottins. Hún boðar að Immanúel muni fæðast af meyju og gjöra undursamleg verk og tákn. Hún segir fyrir um dauða hans, greftrun og upprisu frá dauðum sem Frelsari allra manna.“[7]
Fyrir Híerónýmus var því rannsókn Ritningarinnar ekki markmið í sjálfu sér. Hún var leið til að þekkja Krist. Þessi sannfæring skýrir að miklu leyti hvers vegna hann var tilbúinn að verja áratugum ævinnar í að rannsaka tungumál, bera saman handrit, þýða texta og skrifa skýringarrit.
Híerónýmus í myndlist
Í myndlist hefur Híerónýmus um aldir verið sýndur með ýmsum táknum sem minna á líf hans og verk. Oft situr hann við bók eða skrifborð, sem táknar ást hans á Ritningunni og fræðistörfin. Við hlið hans má gjarnan sjá höfuðkúpu, memento mori, áminningu um dauðann og hverfulleika jarðlífsins.
Í öðrum myndum birtist ljón við hlið hans. Það vísar til miðaldahefðar þar sem sagt var að Híerónýmus hefði dregið þyrni úr loppu ljóns og dýrið síðan fylgt honum sem tryggur félagi. Sagan er ekki söguleg heimild um ævi Híerónýmusar og virðist hafa færst yfir á hann úr eldri frásögn af heilögum Gerasimusi, en hún varð engu að síður eitt þekktasta tákn hans í vestrænni myndlist.[8]
Híerónýmus er einnig stundum sýndur í rauðum skrúða eða með kardínálahatt. Það er síðari tíma táknmál. Kardínálaembættið í þeirri mynd sem við þekkjum varð ekki til fyrr en löngu eftir daga hans. Rauði búningurinn vísar því fremur til náinna tengsla hans við Damasus páfa og stöðu hans í kirkjulegri hefð en til raunverulegs embættis sem hann gegndi.
Einn hinna miklu latnesku kirkjufeðra
Í vestrænni kirkjuhefð er Híerónýmus talinn einn hinna fjögurra miklu latnesku kirkjufeðra ásamt heilögum Ambrósíusi frá Mílanó, heilögum Ágústínusi frá Hippo og heilögum Gregoríusi mikla páfa. Þessir fjórir menn höfðu hver með sínum hætti gríðarleg áhrif á guðfræði, ritningarskilning, sálgæslu og kirkjulíf Vesturlanda.
Híerónýmus lést í Betlehem 30. september árið 420, eftir langa ævi helgaða Ritningunni. Hann var jarðsettur þar, nærri fæðingarstað Krists samkvæmt fornum heimildum. Minningardagur hans er 30. september.[1][2]
Lærdómur
Af heilögum Híerónýmusi lærum við að ástin á Guðs orði er ekki aðeins bókleg iðja heldur hluti af lifandi sambandi mannsins við Krist. Hann sýnir jafnframt að trú og fræðileg nákvæmni þurfa ekki að vera andstæður. Einmitt vegna þess að Ritningin var honum heilög lagði hann svo mikla áherslu á tungumálin, textana og merkingu orðanna.
Hann minnir okkur einnig á mikilvægi þess að leita til heimildanna sjálfra, hlusta á þá sem kunna meira en við og vera reiðubúin að endurskoða eigin skilning. Híerónýmus gat verið harður í deilum og var langt frá því að vera gallalaus maður, en eldmóður hans fyrir Ritningunni hefur skilað sér í arfleifð sem lifir enn.
Orð hans úr formála Jesajaskýringanna draga þessa arfleifð saman:
„Vanþekking á Ritningunni er vanþekking á Kristi.“
Bæn
Guð, þú gafst heilögum Híerónýmusi eldmóð og kraft til að skilja og skýra ritningarnar. Veit oss að við fylgjum fordæmi hans, elskum Orð þitt og finnum í því leiðsögn, huggun og styrk á vegi lífsins. Fyrir Drottin vorn Jesú Krist, son þinn, sem lifir og ríkir með þér í einingu Heilags Anda, einn sannur Guð um aldir alda. Amen.
Heimildir
[1] Benedikt XVI páfi: „Saint Jerome (1)“, General Audience, 7. nóvember 2007, Páfagarðurinn. Sjá einnig „Saint Jerome (2)“, General Audience, 14. nóvember 2007.
[2] Butler's Lives of the Saints, endurskoðað af Herbert J. Thurston S.J. og Donald Attwater, Burns & Oates, Kent, 1985 (copyright 1956, 1985). 30. september: „St Jerome, Doctor of the Church (A.D. 420)“, bls. 308–310.
[3] Heilagur Híerónýmus: Epistula 22, einkum 30. kafli. Þar segir Híerónýmus frá draumnum þar sem hann heyrði: „Þú ert fylgismaður Cícerós, ekki Krists.“
[4] Frans páfi: Scripturae Sacrae affectus, postullegt bréf á 1600 ára ártíð dauða heilags Híerónýmusar, 30. september 2020.
[5] Heilagur Híerónýmus: Epistula 108 – To Eustochium (Epitaphium Sanctae Paulae), árið 404. Minningarrit Híerónýmusar um heilaga Pálu og mikilvæg frumheimild um líf hennar og klaustursamfélögin í Betlehem.
[6] Innocentius I páfi: Letter 135 – From Pope Innocent to Aurelius og Letter 137 – From Pope Innocent to John, Bishop of Jerusalem, árið 417. Samtímaheimildir um árásirnar á klaustursamfélög Híerónýmusar og Eustókíum í Betlehem.
[7] Heilagur Híerónýmus: Formáli að skýringum á Jesaja, nn. 1–2: CCL 73, 1–3. Íslenskur texti samkvæmt Tíðabænabók kirkjunnar, lestur á minningardegi heilags Híerónýmusar 30. september. Sjá einnig umfjöllun Benedikts XVI um orð Híerónýmusar „Vanþekking á Ritningunni er vanþekking á Kristi“: „Saint Jerome (2)“, 14. nóvember 2007.
[8] Um ævi, biblíufræði og arfleifð Híerónýmusar, sjá einnig Frans páfa: Scripturae Sacrae affectus, 30. september 2020.
