29 október 2024

Meðlimir leikmannareglu Karmels gefa lokaloforð

Frá vinstri: Thomas, Jónas, Ragnar, Davíð biskup, Hildur og Ágúst

Laugardaginn 26. október síðastliðinn gáfu fjórir meðlimir Leikmannareglu Karmels lokaloforð sitt í hátíðlegri messu í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. Þetta voru þau Ágúst Elvar Almy, Hildur Sigurbjörnsdóttir, Jónas Sen og Ragnar Geir Brynjólfsson. Davíð biskup Tencer leiddi athöfnina. Loforð til inngöngu í leikmannaregluna eru tvö, það fyrra var gefið 12. desember 2021.

Regludeildin hérlendis var formlega stofnuð 13. apríl 2019. Við stofnunina fengu umsækjendur reglubúning og helgiklæðið „brúna skapúlarið“ ásamt því að velja sér regluheiti. Hópurinn hafði þá hist reglulega um árabil undir leiðsögn systur Agnesar, Karmelnunnu í Hafnarfirði.

Heilagur Jóhannes Eudes – trúboði, reglustofnandi og postuli hjarta Jesú og Maríu – minning 19. ágúst

Heilagur Jóhannes Eudes Heilagur Jóhannes Eudes var einn af hinum miklu endurnýjendum frönsku kirkjunnar á 17. öld. Hann var trúboði, prédik...