17 september 2026

Heilög Hildegard frá Bingen, mey og kirkjufræðari - minning 17. september

Heilög Hildegard frá Bingen – mey og kirkjufræðari

Í dag, 17. september, heldur Kirkjan minningu heilagrar Hildegardar frá Bingen, meyjar og kirkjufræðara. Hildegard var ein merkasta kona miðalda, benediktínsk nunna og abbadís, dulspekingur, guðfræðingur, rithöfundur, skáld, tónskáld og fræðikona. Hún fæddist árið 1098 og lést 17. september 1179, og er minningardagur hennar því haldinn á dánardegi hennar.

Dýrlingdómur Hildegardar á sér óvenjulega sögu. Þótt hún hefði um aldir verið heiðruð sem heilög hafði hefðbundnu kanóníseringarferli hennar aldrei verið lokið. Benedikt XVI páfi gekk formlega frá málinu 10. maí 2012 með svonefndri jafngildri kanóníseringu (canonizatio aequipollens), þar sem aldagömul og stöðug dýrkun hennar í Kirkjunni var viðurkennd og henni veitt staða dýrlings í allri Kirkjunni.[6]

Nokkrum mánuðum síðar, 7. október 2012, lýsti Benedikt XVI hana kirkjufræðara (Doctor Ecclesiae universalis), ásamt heilögum Jóhannesi frá Ávila. Þar með skipaði Hildegard sér í fámennan hóp þeirra dýrlinga sem Kirkjan hefur sérstaklega viðurkennt fyrir framúrskarandi kenningu og varanlegt framlag til skilnings á kristinni trú.[3][4]

Minning heilagrar Hildegardar fékk síðan enn skýrari sess í helgihaldi allrar Kirkjunnar þegar Frans páfi lét árið 2021 færa hana inn í almenna rómverska dagatalið sem valkvæða minningu 17. september, undir heitinu heilög Hildegard frá Bingen, mey og kirkjufræðari.[7]

Benedikt XVI um Hildegard

Árið 2012 birti ég hér á Kirkjunetinu íslenska þýðingu og samantekt á umfjöllun Benedikts XVI páfa um heilaga Hildegard. Við nánari yfirferð kemur í ljós að meginuppistaða textans er úr tveimur erindum sem Benedikt flutti á almennum áheyrnarfundum 1. og 8. september 2010, þar sem hann fjallaði ítarlega um ævi Hildegardar, dulræna reynslu hennar, ritverk, tónlist og guðfræðilega arfleifð.[1][2]

Þýðingin var gerð árið 2012 og er ekki nákvæm orðrétt þýðing, heldur lausleg íslensk þýðing og samantekt þar sem á stöku stað voru settar inn skýringar til að auðvelda lesturinn. Við þessa endurbirtingu hefur textinn verið yfirfarinn með hliðsjón af frumtextum Páfagarðs, nokkur atriði í þýðingunni lagfærð og texti sem áður hafði verið felldur niður tekinn með. Meginuppbyggingu og yfirbragði upphaflegu þýðingarinnar hefur þó verið haldið.

Hildegard frá Bingen

"Hildegard frá Bingen fæddist árið 1098 sennilega í Bermersheim í Rínarlöndum skammt frá Alzey. Hún náði 81 árs aldri og dó árið 1179 þrátt fyrir að hafa verið heilsuveil alla ævi. Hún fæddist inn í stóra aðalsmannafjölskyldu og foreldrar hennar tileinkuðu ævi hennar þjónustu við Guð. Þegar hún var átta ára gömul byrjaði formlegur undirbúningur hennar fyrir klausturlífið samkvæmt ákvæðum reglu Hl. Benedikts.

Til að tryggja að hún fengi viðeigandi almenna og kristna menntun var henni komið fyrir í umsjón ekkjunnar Uda frá Gölklheim sem tekið hafði regluvígslu og síðar hjá Jutta frá Spanheim sem var nunna við Benediktínaklaustrið í St. Disibodenberg. Lítið nunnusamfélag var að þróast þar sem fylgdi reglu Hl. Benedikts. Hildegard tók við klausturbúningi af Otto biskupi af Bamberg og árið 1136 þegar Móðir Jutta, sem þá var orðin príorinna, dó kusu systurnar Hildegard príorinnu. Hún rækti skyldur sínar sem príorinna vel og hæfileikar hennar sem klausturstjórnanda komu fljótt í ljós.

Nokkrum árum síðar, að hluta til vegna mikillar aðsóknar kvenna að reglunni, flutti hún nunnusamfélagið frá áhrifavaldi munkaklaustursins í Disibodenburg og fór með það til Bingen. Hún helgaði klaustrið þar hl. Rupert og dvaldi þar til æviloka. Stjórnunarstíll hennar gæti verið fyrirmynd hverrar trúarreglu. Hún var leiðarljós í heilagleika og góðverkum og kepptu nunnurnar hver við aðra í dyggðum og þjónustu hver við aðra.  

Þegar hún var príorinna klaustursins í Disibodenberg byrjaði hún að segja frá dulrænni reynslu, vitrunum eða leiðslusýnum sem hún upplifði. Hún greindi aðeins munknum Volmar, andlegum leiðbeinanda sínum frá þessu sem og ritara sínum, nunnu að nafni Richardis di Strade sem hún treysti vel. Eins og gerist alltaf í lífi þeirra sem upplifa sanna dulræna reynslu vildi hún leggja frásögn sína í dóm yfirvalda kirkjunnar til að sannprófa uppruna fyrirbæranna. Hún óttaðist að um hugarburð væri að ræða og að þetta væri ekki frá Guði komið. Hún leitaði því til manns sem naut mikillar virðingar í kirkjunni á þessum tíma: Hl. Bernard af Clairvaux. Hl. Bernard róaði og hughreysti Hildegard.

Árið 1147 fékk hún aðra og mjög mikilvæga viðurkenningu í kjölfar þess að Eugene III páfi, sem stýrði kirkjuþinginu í Trier, fékk að sjá texta með frásögn af einni af leiðslusýnum hennar. Páfi gaf Hildegard fyrirmæli um að skrá sýnir sínar og að gera þær lýðum ljósar.

Frá þeirri stundu óx hið andlega álit hennar svo mjög að sumir samtímamanna hennar nefndu hana "Tevtónsku spákonuna". Þetta, kæru vinir, er innsigli sannrar upplifunar hins Heilaga Anda sem er uppruni allra náðargjafa: Manneskjan sem þiggur hinar yfirnáttúrulegu gjafir stærir sig aldrei af þeim, flíkar þeim ekki og framar öllu sýnir hinu kirkjulega yfirvaldi fulla hlýðni [því] sérhver gjöf sem gefin er af Heilögum Anda er ætluð til að styrkja kirkjuna og kirkjan í gegnum leiðtoga sína þekkir uppruna gjafanna. Þessi mikla kona, þessi "spámaður" talar líka til okkar í dag, í styrk sínum að greina tákn tímans, í kærleika sínum til sköpunarinnar, í læknislist sinni, í skáldskap sínum, í tónlist sinni sem í dag hefur verið endurgerð, í kærleika sínum til Krists og til kirkju hans, sem á þeim tíma þjáðist einnig vegna synda bæði presta og leikmanna. [...]

Hinar dulrænu sýnir Hildegard líkjast sýnum spámanna Gamla Testamentisins. Hún tjáir sig innan menningarlegs og trúarlegs ramma samtíma síns, hún túlkar helga ritningu í ljósi Guðs og beitir túlkun sinni á aðstæður lífsins. Þetta hafði í för með sér að áheyrendur hennar fundu fyrir þörf að haga breytni sinni samkvæmt stöðugum og einbeittum kristnum lífsstíl. Í bréfi til Hl. Bernards játar hún: "Sýnin hrífur alla verund mína, ég sé ekki með augum líkamans en hún birtist mér í anda dulspeki ... Ég ber kennsl á hina djúpu merkingu þess sem er sett fram í Sálmunum, í Guðspjöllunum og í öðrum bókum [biblíunnar] sem mér hafa verið sýndar í sýninni. Sýnin brennur eins og eldur í brjósti mér og í sál minni og leiðbeinir mér til djúps skilnings á textanum." (Epistolarium pars prima I-XC: CCCM 91).

Sýnir Hildegard hafa ríkar guðfræðilegar skírskotanir. Þær vísa til mikilvægra þátta í sögu frelsunarinnar og tungumál þeirra er ljóðrænt og táknrænt. Til dæmis í helsta verki hennar Scivias sem þýðir "Þekktu leiðirnar" tekur hún saman í 35 sýnum atburði úr frelsunarsögunni allt frá sköpun heimsins til endaloka tímans. Með kvenlegri næmni þróar Hildegard kjarna verks síns en það er leiðarstefið um hið leyndardómsfulla brúðkaup Guðs og mannkyns sem birtist í Holdtekjunni. [Holdtekju Krists Aths. þýð.] Á krosstrénu á sér stað brúðkaup Sonar Guðs og Kirkjunnar, brúðar hans, fyllt náð og þeim eiginleika að gefa Guði ný börn, í Heilögum Anda (Visio tertia: PL 197, 453c).

Af þessum stuttu tilvísunum sjáum við að guðfræðin getur lært af framlagi kvenna því þær geta talað um Guð og leyndardóma trúarinnar í ljósi sinnar sérstöku greindar og næmleika. Því hvet ég allar þær konur sem sinna þessari þjónustu til að gera það í djúpum kirkjulegum anda, næra íhugun sína með bæn og beina sjónum sínum að hinum mikla auð miðaldadulspekinnar, sem enn hefur ekki verið kannaður til fulls, umfram allt að þeim fyrirmyndum sem skína skært, eins og Hildegard frá Bingen.  

Dulspekingurinn frá Rínarlöndum er líka höfundur annarra verka sem innihalda eins og Scivias frásagnir af dulsýnum hennar. Þau eru Liber vitae meritorum (Bók lífsdyggðanna) og Liber divinorum operum (Bók hinna guðlegu verka), líka nefnd De operatione Dei. Í fyrra verkinu minnir hún okkur á að öll sköpunin þiggur líf frá Þrenningunni. Verkinu er beint að sambandinu milli dyggða og lasta og útskýrir af hverju menn verða að ganga á hólm við lestina dag hvern, lestina sem fjarlægja þá frá Guði og dyggðinni sem er þeim til góðs. Hvatningin er að fjarlægja sjálfa sig frá illu til þess að gefa Guði dýrð og eftir dyggðuga tilveru ganga inn í líf sem er fylling gleði.

Í síðara verkinu sem margir álíta vera meistaraverk hennar lýsir hún á nýjan leik sköpunarverkinu og sambandi þess við Guð, hún lýsir þungamiðju mannlegrar tilveru og ber fram Krist-miðaða [guðfræði] með biblíulegum og kirkjufræðaralegum blæ, þar segir frá fimm sýnum innblásnum af anda Jóhannesarguðspjalls. Í öðrum verkum sínum tekur Hildegard fyrir ýmisleg áhugaverð atriði og menningarlegan fjölbreytileika sem einkenndi nunnuklaustur miðalda. Þetta gerir hún á þann hátt að það myndar sterka andstæðu við fordóma sem enn eru til staðar gagnvart þessu tímabili.

Hún hafði áhuga á læknislist, náttúruvísindum sem og tónlist því hún hafði listræna hæfileika. Hún orti lofgerðarsálma, víxlsöngva og söngva sem safnað var saman undir titlinum Symphonia Harmoniae Caelestium Revelationum (Sinfónía samhljóms hinna himnesku opinberana). Tónlist þessi var flutt með fögnuði í klaustrum hennar og breiddi þar út anda friðsældar sem hefur borist allt til okkar daga. Fyrir hana sjálfa var allt sköpunarverkið sinfónía hins Heilaga Anda sem í sjálfum sér er fögnuður og gleði. Vinsældirnar sem Hildegard naut urðu til þess að margir leituðu ráða hjá henni. Vegna þess eru mörg bréf frá henni varðveitt.

Mörg karla- og kvennaklaustur leituðu til hennar, sem og biskupar og ábótar og mörg andsvara hennar geta átt við okkur. Til dæmis þessi orð sem hún skrifaði til nunnusamfélags: "Hið andlega líf verður að rækta af mikilli skyldurækni. Til að byrja með er það byrði því það kallar á afneitun lystisemda holdsins og þess háttar hluta. En ef hún [sál nunnunnar] lætur hrífast af heilagleikanum mun hinni heilögu sál finnast að jafnvel fyrirlitning á heiminum sé sæt og elskuverð. Allt sem þarf er að gæta þess að sálin visni ekki. " (E. Gronau, Hildegard. Vita di una donna profetica alle origini dell'età moderna, Milan 1996, p. 402).  

Þegar Friðrik Barbarossa keisari kom af stað klofningi í Kirkjunni með því að styðja að minnsta kosti þrjá andpáfa gegn Alexander III, hinum lögmæta páfa, hikaði Hildegard ekki, hvött áfram af sýnum sínum að minna hann á að jafnvel hann, keisarinn væri undirorpinn dómi Guðs. Í algeru óttaleysi sem einkennir góða spámenn skrifaði hún þessi orð til hans, eins og þau væru töluð af Guði: "Þig mun iðra þessarar illu breytni hinna guðlausu sem fyrirlíta mig! Hlustaðu, ó konungur, ef þú vilt lifa! Ella mun sverð mitt nísta þig." (ibid., p. 412).

Í krafti þess andlega myndugleika sem henni hafði verið gefinn lagði Hildegard upp í ferðir á síðustu árum ævinnar. Þetta gerði hún þrátt fyrir hækkandi aldur og það hve ferðalög voru óþægileg [á þessum tíma]. Tilgangurinn var að tala til þjóðar Guðs [kirkjunnar]. Fólkið hlustaði viljugt, jafnvel þegar orð hennar voru hörð. Hún var álitin sendiboði Guðs. Fyrst og fremst hvatti hún klausturreglurnar og klerkastéttina til að lifa í samræmi við köllun sína. Á sérstakan hátt andmælti Hildegard hreyfingu þýskra Katara. Heiti þeirra merkir bókstaflega „hinir hreinu“ og þeir boðuðu róttæka endurnýjun Kirkjunnar, einkum til að berjast gegn misnotkun innan klerkastéttarinnar. Hildegard ávítaði þá fyrir að reyna að breyta grundvelli kirkjunnar og minnti þá á að sönn endurnýjun kirkjulegra samfélaga fæst aðeins með einlægum anda iðrunar og með því að fara fram á að fólk snúi sér til trúarinnar, fremur en með því að breyta forminu. Þetta eru boð sem við ættum aldrei að gleyma.

Við skulum alltaf ákalla Heilagan Anda að hann veki upp innan Kirkjunnar heilagar og hugrakkar konur eins og heilaga Hildegard frá Bingen, sem þroski þær gjafir sem þær hafa fengið frá Guði og beri fram sitt eigið sérstaka og dýrmæta framlag til andlegrar þróunar samfélaga okkar og Kirkjunnar á okkar tímum."

Hér lýkur þessari lauslegu þýðingu og samantekt á tveimur erindum Benedikts XVI páfa um heilaga Hildegard frá Bingen. Erindin flutti hann á almennum áheyrnarfundum 1. og 8. september 2010. Þýðingin var upphaflega gerð og birt árið 2012 en hefur nú verið yfirfarin með hliðsjón af frumtextum Páfagarðs, nokkur atriði lagfærð og texti sem áður hafði verið felldur niður tekinn með. RGB/Áður birt að hluta til á vefsetrinu www.kirkju.net 21.10.2012.[Tengill]

Tónlist heilagrar Hildegardar

Áður en sagt er skilið við Hildegard frá Bingen er rétt að minnast sérstaklega á tónlist hennar. Tónsmíðar hennar, sem Benedikt XVI páfi fjallar um hér að framan, hafa tryggt henni sérstakan sess í tónlistarsögunni. Hún samdi meðal annars sekvensur, víxlsöngva, lofgerðarsöngva og helgileikinn Ordo Virtutum. Hún er eitt elsta nafngreinda tónskáld vestrænnar tónlistarsögu sem varðveitt eru verk eftir.

Tónlist Hildegardar verður vart skilin frá guðfræði hennar og dulrænni sýn á sköpunina. Eins og Benedikt XVI bendir á leit hún á sköpunarverkið allt sem sinfóníu Heilags Anda. Söngurinn varð þannig ekki aðeins list heldur einnig leið til að tjá samhljóm sköpunarinnar og kærleika Guðs.

Meðal tónverka hennar er hinn fagri söngur Caritas abundat in omnia — „Kærleikurinn flæðir yfir allt“. Þar birtist með einkar skýrum hætti sú sýn Hildegardar að kærleikur Guðs umlyki og gegnsýri allt sköpunarverkið.

Hildegard og Richardis – vinátta, ást og missir

Ein persónulegasta og áhrifamesta sagan úr ævi Hildegardar tengist Richardis von Stade, ungri nunnu sem um árabil var náinn samstarfsmaður hennar og vinkona. Richardis aðstoðaði Hildegard meðal annars við ritun Scivias og virðist hafa skipað alveg sérstakan sess í lífi hennar. Bréf Hildegardar sýna að tengsl þeirra voru henni ákaflega dýrmæt og að aðskilnaður þeirra varð henni mikið áfall.[8]

Árið 1151 var Richardis kjörin abbadís í klaustri í Bassum, fjarri Rupertsberg. Hildegard brást mjög illa við tíðindunum og taldi að fjölskylda Richardis hefði átt þátt í að koma henni í þetta embætti. Hún barðist af mikilli einurð gegn brottför hennar, skrifaði móður Richardis, erkibiskupunum í Mainz og Bremen og leitaði að lokum jafnvel til Eugeniusar III páfa í þeirri von að fá ákvörðuninni hnekkt. Páfinn varð ekki við ósk hennar og Richardis fór frá Rupertsberg.[8][9]

Bréf Hildegardar bera skýrt vitni um hve djúp tilfinningatengslin voru. Í bréfi til Richardis lýsir hún sorg sinni yfir aðskilnaðinum og í öðrum bréfum kemur fram hve mikils hún mat persónu hennar, visku, skírlífi og allt líf hennar. Hildegard leit ekki aðeins á Richardis sem samstarfskonu heldur manneskju sem hún unni mjög heitt.[8]

Sagan fékk síðan sorglegan endi. Richardis lést ung árið 1151, skömmu eftir brottförina frá Rupertsberg. Hartwig, erkibiskup af Bremen og bróðir Richardis, tilkynnti Hildegard um andlátið og sagði henni að Richardis hefði fyrir dauða sinn grátið yfir aðskilnaðinum og þráð að snúa aftur til hennar. Í svari sínu lýsti Hildegard Richardis sem dóttur sinni en jafnframt móður og sagði að hún hefði varðveitt hana í guðlegum kærleika. Sorg Hildegardar yfir missinum verður vart misskilin.[8][9]

Þessi sterku tengsl Hildegardar og Richardis hafa á síðari tímum orðið tilefni ólíkra túlkana. Sumir nútímahöfundar hafa lesið bréfin sem vitnisburð um rómantískar tilfinningar.[10] Slíka túlkun verður þó að setja fram með fyrirvara. Heimildirnar sýna ótvírætt djúpa ást, nánd og sterka tilfinningalega bindingu Hildegardar við Richardis, en þær gera okkur ekki kleift að ákvarða nánar hvers eðlis samband þeirra var. Hugtök nútímans um kynhneigð verða heldur ekki með einföldum hætti yfirfærð á klausturlíf og vináttuform 12. aldar.

Það þarf þó ekki að draga úr mikilvægi sambandsins. Þvert á móti sýnir sagan að á bak við hina miklu dulspekikonu, guðfræðing og kirkjufræðara var kona sem gat bundist annarri manneskju djúpum böndum, barðist af öllum mætti gegn því að missa hana og syrgði hana þegar hún lést. Bréfin um Richardis veita þannig óvenjulega persónulega innsýn í líf heilagrar Hildegardar frá Bingen.[8]

Í þessu samhengi er einnig rétt að hafa í huga hugmyndir miðalda um andlega vináttu (amicitia spiritualis). Heilagur Aelred frá Rievaulx (um 1110–1167), sem var samtímamaður Hildegardar, fjallaði ítarlega um slíka vináttu í ritinu De spirituali amicitia. Þar lýsir hann djúpri vináttu tveggja einstaklinga sem sambandi sem getur átt rætur í Kristi og leitt þá nær Guði. Slík náin persónuleg vinátta gat því átt sér stað innan klausturlífs án þess að hún væri skilin sem kynferðislegt samband. Það sannar ekki að samband Hildegardar og Richardis eigi að skilgreina með hugtökum Aelreds, en minnir á að sterkt ástar- og vináttuorðfæri miðalda verður að lesa í menningarlegu og trúarlegu samhengi síns tíma.[11][12]

Heimildir

1. Benedikt XVI páfi: Saint Hildegard of Bingen. Almennur áheyrnarfundur, Castel Gandolfo, 1. september 2010. Páfagarður.

2. Benedikt XVI páfi: Saint Hildegard of Bingen (2). Almennur áheyrnarfundur, 8. september 2010. Páfagarður.

3. Benedikt XVI páfi: Apostolic Letter proclaiming Saint Hildegard of Bingen a Doctor of the Universal Church, 7. október 2012. Páfagarður.

4. Benedikt XVI páfi: Holy Mass for the opening of the Synod of Bishops and proclamation of St John of Avila and St Hildegard of Bingen as Doctors of the Church. Prédikun, Péturstorgi, 7. október 2012. Páfagarður.

5. Gronau, Eduard: Hildegard. Vita di una donna profetica alle origini dell'età moderna. Mílanó, 1996. Sjá einkum bls. 402 og 412, sem Benedikt XVI vísar til í erindi sínu 8. september 2010.

6. Benedikt XVI páfi: Spiritum Sanctum – De peracta Canonizatione aequipollente Hildegardis Bingensis. Jafngild kanónísering heilagrar Hildegardar frá Bingen, 10. maí 2012. Acta Apostolicae Sedis, 104 (2012), bls. 863–867. Páfagarður.

7. Kongregasjónin fyrir guðsdýrkun og sakramentareglu: Decree on the Inscription of the Celebrations of Saint Gregory of Narek, Saint John De Avila and Saint Hildegard of Bingen in the General Roman Calendar, 25. janúar 2021. Minning heilagrar Hildegardar frá Bingen, meyjar og kirkjufræðara, færð inn í almenna rómverska dagatalið sem valkvæð minning 17. september. Páfagarður.

8. Baird, Joseph L. (ritstj. og þýð.): The Personal Correspondence of Hildegard of Bingen. Oxford University Press, 2006. Sjá einkum III. kafla, „Richardis von Stade“, bls. 39–52.

9. Baird, Joseph L. og Radd K. Ehrman (þýð.): The Letters of Hildegard of Bingen, I–III. Oxford University Press, 1994–2004. Bréfasafnið hefur að geyma varðveitt bréf Hildegardar og bréfaskipti hennar vegna Richardis von Stade.

10. Cherry, Kittredge: Hildegard of Bingen and Richardis: Medieval mystic and the woman she loved. Q Spirit. Nútímatúlkun á sambandi Hildegardar og Richardis í samhengi LGBTQ-sögu og -andlegheita.

11. Aelred frá Rievaulx: Spiritual Friendship (De spirituali amicitia). Þýð. Mark F. Williams. University of Scranton Press, 2002. Kristileg umfjöllun Aelreds um eðli, gildi og ræktun andlegrar vináttu.

12. Raguž, Ivica: „Aelred of Rievaulx on Spiritual Friendship“. Služba Božja, 48. árg., 3. tbl. (2008), bls. 261–285. Fræðileg umfjöllun um De spirituali amicitia, þar á meðal um eðli og tilgang andlegrar vináttu hjá Aelred.

Minning hinna heilögu verndarengla – 2. október

Verndarengill „Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum. Þeir munu bera þig á höndum sér svo a...