Sálmasíða Sóknar hins heilaga Kross Selfossi, nóv. 2026
Skannið QR kóðann til að finna þessa síðu á netinu
(Númerin vísa í rauðu sálmabókina. The numbers refer to the red hymnal)
Lýs milda ljós nr. 325
1 Lýs, milda
ljós, í gegnum þennan geim,
mig glepur sýn
því nú er nótt og harla langt er heim.
Ó, hjálpin mín,
styð þú minn fót, þótt fetin nái skammt
ég feginn verð ef áfram miðar samt.
2 Ég spurði fyrr: Hvað hjálpar heilög trú
og hennar ljós?
Mér sýndist bjart en birtan þvarr og nú
er burt mitt hrós.
Ég elti skugga, fann þó sjaldan frið
uns fáráð öndin sættist Guð sinn við.
3 Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bárur, brim og voðasker.
Nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögru dyr
og engla þá sem barn ég þekkti fyrr.
Miskunnarbæn (Kyrie), nr. 398
;.;Drottinn, miskunna þú oss;.;
;.;Kristur, miskunna þú oss;.;
;.;Drottinn, miskunna þú oss;.;
Alleluia, nr. 1, 419
Alleluia, alleluia
Vers
Alleluia, alleluia
Hærra minn Guð til þín nr. 323
1 Hærra, minn Guð, til
þín,
hærra til þín,
enda þótt öll sé kross
upphefðin mín.
Hljóma skal harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.
2 Villist ég vinum frá
vegmóður, einn,
köld nóttin kringum mig,
koddi minn steinn,
heilög skal heimvon mín.
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.
3 Sofanda sýndu þá
sólstigans braut
upp í þitt eilífa
alföðurskaut.
Hljómi svo harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.
Helgur, helgur nr. 431
Helgur, helgur, helgur,
helgur Drottinn er!
Helgur, helgur, helgur,
hann einn Guðs nafn ber.
Hann um eilífð alla,
yrkir heimsins brag,
fyrir upphaf alda, eftir hinstan dag.
Agnus dei, Guðs lamb
Ó, þú Guðs lamb, Kristur, þú sem ber burt
heimsins synd, miskunna þú oss.
Ó, þú Guðs lamb, Kristur, þú sem ber burt heimsins synd, miskunna þú oss.
Ó, þú Guðs lamb, Kristur, þú sem ber burt heimsins synd, gef oss þinn frið!
How great is our God
[Verse 1]
The splendor of a King, clothed in majesty,
Let all the earth rejoice, all the earth rejoice.
He wraps Himself in light, and darkness tries to hide,
And trembles at his voice, trembles
at his voice.
[Chorus]
How great is our God, sing with me,
How great is our God, and all will see,
How great, how great is our God.
[Verse 2]
Age to age He stands, and time is in His hands,
Beginning and the end, beginning and the end.
The Godhead, three in one: Father, Spirit, Son,
The Lion and the Lamb, the Lion and the Lamb.
[Chorus]
How great is our God, sing with me,
How great is our God, and all will see,
How great, how great is our God.
[Bridge]
Name above all names,
Worthy of all praise,
My heart will sing
How great is our God.
[Outro]
How great is our God, sing with me,
How great is our God, and all will see,
How great, how great is our God.
Drottinn, vor konungur nr. 122
1
Drottinn, vor konungur,
dýrðlegt er nafn þitt hið blíða,
dýrðlegt og vegsamlegt
heims meðal gjörvallra lýða.
Drottinn, þín hjörð
dýrkar þitt nafn hér á jörð
eins og um alheiminn víða.
2
Lofgjörð þú bjóst þér hjá
börnunum saklausu' og ungu,
brjóstmylkingunum þú
jafnvel knýr vegsemd af tungu.
Þögnuðu þeir,
þá mundu flytja því meir
boðskap þann björgin hin þungu.
3
Líti' eg til himinsins
handaverk þín er ég skoða,
herskara stjarnanna,
tign þína' og almátt er boða,
undrar mig á
ást þín og náð hvað er há
oss er þú einnig vilt stoða.
4 Hvað
eru dauðlegir
menn að þú minnst þeirra getur,
mannanna börn að þú
vegsemdar slíkrar þau metur?
Manninn á jörð
máttugri englanna hjörð
lítið eitt lægra þú setur.
5
Handaverk sjálfs þín
þú honum til umráða gefur,
hamingju, blessun og
sæld hann þú krýnir og vefur.
Drottinn, þitt nafn
dýrki þitt herskara safn,
allt það sem andardrátt hefur.
Takk fyrir samsönginn
Thank you for singing together
Dziękuję za melodię