![]() |
| Heilagur Jóhannes skírari |
Í dag minnist kirkjan píslarvættis heilags Jóhannesar skírara. Á íslensku hefur þessi dagur verið nefndur Höfuðdagur. Guðspjallið segir frá því hvernig Jóhannes skírari var hálshöggvinn að skipan Heródesar Antípasar. Hann var fangelsaður vegna þess að hann hafði átalið siðferðisbrot konungs (Mk 6,18). Flavius Jósefus, sagnaritari þess tíma, segir að Heródes hafi óttast uppreisn í kjölfar áhrifa Jóhannesar á fólkið. Í veislu Heródesar, í samkvæmi sem einkenndist af drykkjusvalli, varð hégómlegt loforð til þess Jóhannes missti líf sitt (Mk 6,17-29).
Höfuðdagur í íslenskri þjóðtrú
Minningardagur píslarvættis heilags Jóhannesar skírara hefur frá fornu fari verið nefndur Höfuðdagur á Íslandi. Nafnið vísar beinlínis til örlaga Jóhannesar, sem var hálshöggvinn að skipan Heródesar Antípasar. En eins og svo oft gerðist með gamla kirkjulega merkisdaga festist dagurinn einnig við árstíðaskipti og reynslu fólks af náttúrunni.
Höfuðdagur varð þannig einn kunnasti veðurspádagur íslenskrar þjóðtrúar. Sú trú var útbreidd að um 29. ágúst yrðu veðrabrigði og að sú breyting gæti gefið vísbendingu um tíðarfarið næstu vikurnar. Í einni heimild er það orðað svo: „Trú margra var það að veðurfar breyttist um höfuðdag.“ Veðrið sjálfan daginn var einnig rannsakað af mikilli athygli. Rigning að morgni sem létti þegar á daginn leið og endaði í sólskini þótti til dæmis geta boðað góða þurrkatíð það sem eftir lifði sláttar. Öllu verri fyrirboði þótti ef dagurinn byrjaði með heiðskíru þurrviðri en snerist síðan í votviðri.
Þetta skipti fólk miklu máli í gömlu bændasamfélagi. Margir vildu vera búnir að ná heyjum fyrir Höfuðdag, því eftir hann væri „allra veðra von“. En trúin gat líka falið í sér von: hefði sumarið verið kalt og votviðrasamt mátti vænta þess að Höfuðdagur brygði tíðinni til hins betra.
Þannig varð minningardagur píslarvottsins að merkisdegi í íslensku almanaki. Og það er falleg tenging við boðskap Jóhannesar sjálfs. Á Höfuðdegi vænti fólk þess að veðráttan brygði. Jóhannes skírari hafði einmitt gengið fram og kallað menn til annars konar umskipta – að hjartað brygði um stefnu, maðurinn sneri frá ranglæti og ryddi Drottni veg.
Íhugun – Lectio Divina frá Karmelreglunni
Heródes var handbendi Rómaveldis, sem réði Palestínu frá árinu 63 f.Kr. Keisarinn í Róm var æðsti valdhafi og krafðist skilvirkrar stjórnsýslu sem tryggði tekjur til ríkisins og til hans sjálfs. Áhyggjur Heródesar snerust fyrst og fremst um eigin frama og öryggi. Hann vildi láta líta á sig sem „velgjörðarmann þjóðarinnar“, en í raun var hann harðstjóri (sjá Lk 22,25). Flavius Jósefus segir að raunveruleg ástæða fangelsunar Jóhannesar hafi verið ótti Heródesar við uppreisn. Áminning Jóhannesar um siðleysi Heródesar (Mk 6,18) var „kornið sem fyllti mælinn“, og þess vegna var honum varpað í fangelsi.
Afmæli Heródesar, veisla, dans og óhóf urðu að aðstæðum þar sem víg Jóhannesar var ákveðið. Þar voru „ráðamenn hirðarinnar“, embættismenn og aðalsmenn frá Galíleu samankomnir. Í slíku umhverfi voru bandalög gerð og ákvarðanir teknar. Jóhannes, spámaðurinn, var lifandi vitnisburður gegn þessu spillta kerfi og var því fjarlægður – undir yfirskini persónulegrar skuldbindingar. Þetta afhjúpar siðferðislegan veikleika Heródesar. Mikil völd höfðu safnast á hendur manni sem hafði enga sjálfsstjórn. Í hrifningu veislunnar, gleðinnar og vínsins gaf Heródes loforð undir eið við unglingsstúlku, dansmey. Hjátrúarfullur og hræddur við álitshnekki taldi hann sig verða að standa við loforðið. Fyrir Heródes var líf þegnanna einskis virði. Guðspjallamaðurinn Markús segir frá því hvernig aftakan fór fram og felur síðan söfnuðinum að draga ályktanirnar.
Á milli línanna gefur guðspjallið okkur mikilvægar upplýsingar um þann tíma sem Jesús lifði og hvernig völdum var beitt. Galílea, heimili Jesú, var undir stjórn Heródesar Antípas, sonar Heródesar mikla, frá árinu 4 f.Kr. til ársins 39 e.Kr. – alls í 43 ár! Alla ævi Jesú voru því engin stjórnarskipti í Galíleu. Heródes var í raun einvaldur sem þurfti ekki að svara neinum til saka. Hann gerði eins og honum sýndist: hroki, siðleysi, algert vald, án nokkurs eftirlits af hálfu fólksins.
Heródes byggði nýja höfuðborg, Tíberías. Gamla höfuðborgin Sefforis hafði verið eyðilögð af Rómverjum sem hefnd fyrir uppreisn. Þetta var þegar Jesús var um sjö ára. Tíberías var vígð 13 árum síðar, þegar Jesús var um 20 ára. Borgin fékk nafn sitt til heiðurs Tíberíusi, Rómarkeisara. Þar bjuggu konungurinn, hirðin, embættismenn og auðmenn Galíleu (Mk 6,21). Þar voru landeigendur, hermenn, lögregla og dómarar – oft harðneskjulegir og kærulausir (Lk 18,1-4). Þangað runnu skattar og vörur fólksins. Þar hélt Heródes dauðaorgíur sínar (Mk 6,21-29). Guðspjöllin greina hvergi frá því að Jesús hafi stigið fæti sínum inn í borgina.
Í 43 ára stjórnartíð Heródesar varð til sérstök valdastétt sem var trygg áformum konungs: fræðimenn, kaupmenn, landeigendur, markaðsskattsheimtumenn, tollheimtumenn, herlögregla, dómarar, embættismenn og staðarhöfðingjar. Flestir bjuggu í höfuðborginni og nutu forréttinda, svo sem undanþágu frá sköttum. Aðrir bjuggu í þorpunum en studdu samt stjórnina. Í hverju þorpi var hópur sem var hliðhollur valdakerfinu. Nokkrir fræðimenn og farísear voru bundnir þessu kerfi og stjórnmálum þess. Í guðspjöllunum koma farísear og heródesarsinnar oft saman (Mk 3,6; 8,15; 12,13), sem sýnir bandalag trúar- og veraldlegrar valdhafa. Líf fólks í þorpum Galíleu var því undir miklu eftirliti – bæði stjórnvalda og trúarstofnana. Það þurfti mikið hugrekki að hefja eitthvað nýtt, eins og Jóhannes og Jesús gerðu. Það jafngilti því að kalla yfir sig reiði forréttindastéttanna – bæði þeirra sem höfðu trúarlegt vald og þeirra sem höfðu veraldlegt vald.
Píslarvottur sannleikans
Frans páfi dró fram athyglisverða andstæðu í frásögninni af dauða Jóhannesar skírara. Heródes vissi að Jóhannes var réttlátur og heilagur maður og hafði jafnvel gaman af að hlusta á hann. Í rödd spámannsins heyrði hann kall Guðs um að breyta lífi sínu. En hann gat ekki losað sig úr þeim hnút sem eigið líf hafði bundið hann í. Spillingin, óttinn og tillitið til annarra reyndust sterkari en sannleikurinn sem hann hafði heyrt.
Jóhannes var hins vegar frjáls til að tala. Frans páfi kallaði hann píslarvott sannleikans. Hann var ekki krafinn um að afneita trú sinni heldur var hann líflátinn vegna þess að hann talaði skýrt og var trúr köllun sinni. Hann hafði sagt um Krist: „Hann á að vaxa, en ég að minnka“ (Jh 3,30), og líf hans varð að lokum sjálft vitnisburður um þessi orð. Röddin sem hafði hrópað í eyðimörkinni þagnaði í myrkri fangaklefans, en sannleikurinn sem hún bar vitni um þagnaði ekki.
Frans páfi orðaði lærdóminn þannig að lífið öðlist gildi þegar við gefum það – í kærleika, í sannleika og í þjónustu við aðra. Jóhannes hélt ekki fast í eigið líf heldur gaf það í trúmennsku við köllun sína. Þar liggur sigur píslarvottsins.
Tilvitnun
Jóhannes skírari sagði um Jesú: „Hann á að vaxa, en ég að minnka.“ (Jh 3,30).
Lærdómur
Frásögnin af píslarvætti Jóhannesar skírara snýr venjulegum hugmyndum okkar um vald og frelsi á hvolf. Heródes situr við veisluborðið umkringdur ráðamönnum og aðalsmönnum. Hann getur látið fangelsa mann og tekið af honum lífið með einni skipun. Samt er hann sjálfur ekki frjáls. Hann er bundinn eigin hégóma, ótta við álit annarra og loforði sem hann þorir ekki að draga til baka. Jóhannes situr hins vegar í fangelsi og hefur ekkert veraldlegt vald. Samt er hann frjáls, því hann lætur hvorki ótta né eigin hag ráða því hvað hann segir.
En hvaðan kom Jóhannesi þessi innri styrkur? Benedikt XVI páfi svaraði þeirri spurningu á minningardegi píslarvættis hans árið 2012: styrkur Jóhannesar óx af sambandi hans við Guð og bænin var sá þráður sem lá í gegnum allt líf hans. Trúmennska hans á ögurstundu varð ekki til á einu augnabliki í fangaklefanum. Hún hafði mótast í kyrrðinni, einverunni og bæninni, löngu áður en hann stóð frammi fyrir Heródesi.
Þar liggur líka lærdómurinn fyrir okkur. Fæst okkar verða kölluð til píslarvættis í bókstaflegum skilningi, en kristið líf kallar á það sem Benedikt nefndi „píslarvætti“ daglegrar trúmennsku við guðspjallið. Það birtist í því að láta ekki þægindi, ótta eða álit annarra ráða þegar samviskan kallar okkur til annars. Slíkt hugrekki verður ekki til af viljastyrk einum. Það nærist af bæninni og lifandi sambandi við Guð.
Jóhannes þurfti ekki að sigra Heródes. Verkefni hans var að vera trúr því sem Guð hafði kallað hann til: að ryðja Drottni veg og bera sannleikanum vitni. „Hann á að vaxa, en ég að minnka“ (Jh 3,30). Í þeirri auðmýkt fólst frelsi Jóhannesar – frelsi sem jafnvel Heródes gat ekki tekið frá honum.
Bæn
Heilagi Jóhannes skírari,
þú ruddir Drottni veg
og barst sannleikanum vitni allt til dauða.
Kenn oss að leita Guðs í kyrrð og bæn,
svo að vér öðlumst styrk til að standa stöðug
þegar ótti, eigin hagur eða álit annarra
freistar okkar til að þegja eða víkja frá því sem rétt er.
Bið þú fyrir oss,
að Kristur megi vaxa í hjörtum okkar
og vér sjálf minnka;
að orð hans móti hugsanir okkar og verk
og kærleikur hans gefi oss hið sanna frelsi.
Hjálpa oss að varðveita Guð í fyrsta sæti í lífi okkar
og vera trú köllun okkar í hinu smáa sem hinu stóra,
uns vér fáum að sjá þann augliti til auglitis
sem þú bentir á og sagðir:
„Sjá, Guðs lamb.“
Amen.
--
Heimildir:
Ocarm.org
thjodtru.is: „Höfuðdagurinn 29. ágúst“, Eiríkur Valdimarsson, 30. ágúst 2022


