![]() |
| Eftirmynd helgimyndarinnar í Jasna Góra sem nú er í kapellu Karmelklaustursins í Hafnarfirði |
Í borginni Czestochowa, rúmlega 200 þúsund manna borgar í suðurhluta Póllands stendur klaustrið Jasna Góra (Bjartafjall) þar sem varðveitt er íkon heilagrar Maríu meyjar, kölluð Svarta Madonnan sem nýtur mikillar virðingar. Hún er meðal helgustu helgidóma Evrópu og hefur frá miðöldum verið miðja bænalífs og pílagrímaferða, jafnvel á árum síðari heimsstyrjaldar þegar öll ferðalög voru hættuleg fór fólk í einkaferðir til Jasna Góra.
Klaustrið var stofnað árið 1382 og skv. helgisögn kom íkonið þangað tveim árum síðar. Helgisögn hermir að hl. Lúkas guðspjallamaður hafi málað myndina á borðplötu úr heimili hinnar Heilögu fjölskyldu. Í óeiginlegri merkingu má a.m.k. segja að hl. Lúkas Guðspjallamaður hafi dregið upp skýra mynd af Maríu mey í guðspjalli sínu.
Hún sem vísar veginn
Helgimyndin í Jasna Góra tilheyrir fornri gerð Maríumynda sem nefnist Hodegetria, en heitið merkir „hún sem vísar veginn“. María heldur Jesúbarninu á vinstri handlegg en með hægri hendi bendir hún á hann. Jesús heldur á bók í vinstri hendi og lyftir þeirri hægri til blessunar og kennslu. Myndin felur þannig í sér einfalda en djúpa trúarjátningu: María dregur ekki athyglina að sjálfri sér heldur vísar okkur til Krists, hins eina frelsara heimsins. Hún minnir þannig á orð sín við brúðkaupið í Kana: „Gjörið allt, sem hann segir yður.“ (Jóh 2,5). Athyglisvert er að engar Maríubirtingar eru tengdar Jasna Góra, ólíkt mörgum öðrum þekktum Maríuhelgidómum. Það er helgimyndin sjálf og aldalangt bænalíf pílagríma frammi fyrir henni sem hafa gert staðinn að einum helsta Maríuhelgidómi Evrópu.
Sárin á andliti Maríu
Eitt helsta auðkenni myndarinnar eru örin á hægri kinn Maríu. Árið 1430 var ráðist á helgidóminn, verðmætum stolið og myndin stórskemmd, höggvin með vopni og brotin. Hún var síðar flutt til Kraká og endurgerð, en ummerki árásarinnar voru látin sjást á andliti Maríu. Sárin hafa síðan fengið djúpa táknræna merkingu. Þau minna á sorg móðurinnar sem stóð undir krossi sonar síns og jafnframt á sár þeirra kynslóða sem hafa leitað til hennar í styrjöldum, ofsóknum og öðrum þrengingum. Helgimyndin í Jasna Góra sýnir því ekki móður sem stendur utan við þjáningu mannanna, heldur móður sem ber sjálf merki sársaukans.
Vörn Jasna Góra og María lýst drottning Póllands
Straumhvörf urðu í sögu helgimyndarinnar og klaustursins í Jasna Góra árið 1655 í kjölfar þess að um 70 munkar og 180 sjálfboðaliðar hrundu áhlaupi um 4000 manna sænsks hers við klaustrið.
Í mikilli hátíðarmessu sem Pietro Vidoni sendifulltrúi Páfa leiddi og fram fór í dómkirkjunni í Lwów (Lviv, nú í Úkraínu) hinn 1. apríl 1656, fól Jan II Kazimierz Waza þá konungur Póllands, samveldi Póllands og Litháen vernd hinnar heilögu Maríu meyjar, sem hann lýsti drottningu pólsku krúnunnar og annarra landa hans. Hann sór líka að vernda fólk konungsríkisins fyrir álögum og óréttlátri ánauð.
Jóhannes Páll II og Jasna Góra
Heilagur Jóhannes Páll II páfi bar alla tíð djúpa lotningu fyrir Maríu og Jasna Góra skipaði sérstakan sess í trúarlífi hans. Við helgimyndina eru varðveittar gjafir hans, meðal annars gulliðhjarta sem hann færði helgidóminum að gjöf með einkunnarorðum hans, Totus Tuus – „Allur þinn“. Þar er einnig varðveitt óvenjuleg og áhrifamikil gjöf: belti úr páfakufli hans, blóðugt eftir morðtilræðið á Péturstorgi 13. maí 1981. Þannig hafa gjafirnar við myndina orðið sýnileg merki þeirrar aldagömlu hefðar að leggja bæði þjáningu sína og þakkargjörð fram fyrir Guð og leita um leið fyrirbænar Maríu.
Karmelsysturnar í Hafnarfirði
Víkur nú sögunni til Póllands á fyrri hluta 9. áratugar síðustu aldar þegar saman voru komnar nokkrar pólskar Karmelnunnur sem höfðu hug á að stofna klaustur. Þær höfðu látið gera eftirmynd helgimyndarinnar í Jasna Góra og ætluðu að hafa hana með sér í nýtt klaustur í Póllandi. Þá barst sú fregn að á Íslandi væri laust Karmelklaustur en þaðan höfðu síðustu hollensku nunnurnar farið 10. júní 1983. Það varð úr að pólsku nunnurnar settust að í klaustrinu í Hafnarfirði og komu þangað 19. mars 1984 og tóku eftirmynd helgimyndarinnar með sér.
Þessarar hátíðar er ætíð minnst sérstaklega í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. Þannig var það 26. ágúst 2023. Í hátíðarmessunni sem Davíð biskup Tencer leiddi sagði hann m.a. í lauslegri endursögn að hann væri stundum spurður af því af fólki utan Kaþólsku kirkjunnar af hverju kaþólskir héldu minningu Maríu meyjar og dýrlinganna, það væri nóg að hafa Guð einan. Hann sagðist gjarnan svara því til að með Maríu mey væri komin móðir í hina kristnu fjölskyldu og með dýrlingunum eldri systkini sem gætu leitt okkur áfram með góðu fordæmi.
Upphaflegur pistill birtist 28.8.2023, uppfærður 26.8. 2025, 26.8.2026/RGB
--
Heimild
https://en.jasnagora.pl/cudowny-obraz-matki-bo%C5%BCej/
