![]() |
| Hið alhelga hjarta Jesú og heilög Margrét María Alacoque |
Heilög Margrét María Alacoque (1647–1690) er ein þeirra kvenna sem hafa haft djúpstæð áhrif á bænalíf kaþólsku kirkjunnar. Hún lifði kyrrlátu klausturlífi í Frakklandi, en boðskapurinn sem hún miðlaði um kærleika Jesú barst langt út fyrir klausturveggina. Nafn hennar er einkum tengt virðingunni fyrir hinu alhelga hjarta Jesú: hjarta hans sem elskaði mennina allt til dauða og býður þeim enn að nálgast sig í trausti. [1]
Margrét fæddist árið 1647 í Búrgund í Frakklandi. Faðir hennar var lögbókandi og hún var eitt sjö barna foreldra sinna. Hann lést þegar hún var um átta ára gömul og hún var síðan um tíma í skóla hjá klarissunum í Charolles. Þar vaknaði með henni löngun til klausturlífs. Langvinn og sársaukafull veikindi, sem Butler lýsir sem gigtarkvilla, bundu þó enda á skólagönguna og héldu henni rúmfastri um árabil. Við heimkomuna beið hennar einnig erfiður veruleiki. Ættingjar höfðu tekið yfir stjórn heimilisins og réðu þar öllu. Að sögn Butler fóru þeir með Margréti og móður hennar nánast eins og þjónustufólk. Eftir föðurmissinn bættust þannig við veikindi, ósjálfstæði og niðurlægjandi framkoma á þeirra eigin heimili. Í þessum aðstæðum leitaði Margrét styrks í bæn og íhugun píslarsögu Krists. [1]
Fjölskyldan vildi að Margrét giftist, en köllun hennar til reglulífs varð smám saman skýrari. Árið 1671 gekk hún í klaustur vitjunarsystra í Paray-le-Monial. Reglan var stofnuð árið 1610 af heilögum Frans frá Sales og heilagri Jóhönnu Fransisku de Chantal og dregur nafn sitt af vitjun Maríu Guðsmóður til Elísabetar. Margrét hafði tekið sér nafnið María við fermingu og varð því þekkt sem Margrét María. Klausturlífið reyndist henni ekki fyrirhafnarlaust. Hún var hæglát og seinvirk og átti stundum erfitt með að standast væntingar þeirra sem unnu með henni. Butler segir meðal annars frá því að samstarf hennar við dugmikla og atorkusama systur á sjúkrastofu klaustursins hafi reynt mjög á hana. Helgi hennar þroskaðist þannig mitt í hversdagslegum störfum, veikleikum og erfiðum samskiptum. [1]
„Sjá þetta hjarta“
Samkvæmt frásögn Margrétar Maríu urðu þáttaskil í lífi hennar á hátíð heilags Jóhannesar postula, 27. desember 1673, þegar hún var á bæn frammi fyrir altarissakramentinu. Hún lýsti því að Kristur hefði birt henni kærleika hjarta síns og falið henni að gera hann kunnan. Fleiri slík tilvik fylgdu á næstu misserum. Í miðju þeirra stóð fullvissan um kærleika Krists til mannanna og sorgin yfir því hve oft honum væri svarað með kulda, afskiptaleysi og vanþakklæti. [1]
Í einni þekktustu frásögn hennar, frá árinu 1675, lætur hún Jesú segja: „Sjá þetta hjarta sem hefur elskað mennina svo mjög.“ Orðin draga saman það sem hún taldi sér falið að boða. Guð stendur ekki fjarri mannlegu lífi. Í Jesú Kristi hefur hann komið nærri okkur, tekið á sig kjör okkar og elskað okkur með mannlegu hjarta. Þessum kærleika er okkur boðið að svara. [1]
Við reynslu Margrétar Maríu tengdust ákveðnar bæna- og trúariðkanir: tíð altarisganga, einkum fyrsta föstudag hvers mánaðar, og bænastund á fimmtudagskvöldum til að vaka með Jesú í angist hans í Getsemane. Sú iðkun hefur orðið þekkt sem heilög stund. Hún miðlaði einnig ósk um sérstaka stórhátíð til heiðurs hinu alheilaga hjarta Jesú á föstudeginum sem getur fallið rúmri viku eftir Dýradag, stórhátíð líkama og blóðs Krists sem ber upp í maí eða júní, (Corpus Christi). Þessar áherslur áttu eftir að setja sterkan svip á trúarlíf fjölmargra kaþólskra manna. [1]
Skilningur og mótstaða
Frásögnum Margrétar Maríu var ekki tekið gagnrýnislaust. Yfirmenn hennar reyndu hana og sumir þeirra sem fengnir voru til að meta reynslu hennar töldu hana haldna ímyndunum. Innan klaustursins mætti hún tortryggni og andstöðu. Hún sjálf óttaðist að blekkjast og þurfti að læra að bera reynslu sína undir dóm annarra. [1]
Mikilvægur stuðningsmaður hennar varð jesúítinn Claude de la Colombière, sem kom til Paray-le-Monial sem skriftafaðir. Hann hlustaði á hana, öðlaðist traust á einlægni hennar og tók að sér að styðja útbreiðslu hjartadýrkunarinnar. Fyrir Margréti Maríu skipti miklu að finna mann sem bæði skildi hana og gat leiðbeint henni í trúarlífinu. [1]
Með tímanum breyttist einnig afstaðan innan klaustursins. Henni var falin nýliðafræðsla og fleiri systur tóku upp þá tilbeiðslu sem hún hafði hvatt til. Síðustu æviárin sá hún að boðskapurinn var farinn að berast út fyrir hennar eigið samfélag. Hún lést 17. október 1690, aðeins 43 ára gömul, og var tekin í tölu heilagra árið 1920. Minning hennar er haldin 16. október. [1]
Paray-le-Monial – lifandi staður trúarinnar
Paray-le-Monial, þar sem Margrét María varði síðari hluta ævi sinnar innan klausturveggjanna, er enn í dag samkomustaður fólks sem leitar næringar fyrir trú sína. Þar hefur Emmanuel-samfélagið haldið sumarsamkomur frá 1975 sem sameina bæn, fræðslu og samveru. Fjölskyldur, ungmenni og fólk á öllum aldri koma þangað, og sérstakar samkomur og verkefni eru ætluð yngri kynslóðinni. Skátar sækja staðinn einnig heim. Þannig heldur sagan um Margréti Maríu áfram að tengjast lifandi trúarlífi nýrra kynslóða. [2] [3]
Sumarið 2016 kom ég til Paray-le-Monial ásamt konu minni, dóttur og móður. Það sem snerti mig var hve víða kristin saga og lifandi trúarlíf mættu okkur á þessum slóðum. Þar má nefna Ars-sur-Formans, þar sem heilagur Jóhannes María Vianney þjónaði sem prestur, hið sögufræga klaustur í Cluny og Taizé, þar sem ungmenni frá mörgum löndum koma saman til bæna og samveru. Í næsta nágrenni Paray-le-Monial eru einnig fornir kirkjustaðir á borð við Anzy-le-Duc og Semur-en-Brionnais. Mér fannst sem hver hæð ætti sitt Skálholt, sinn stað þar sem trú og saga hefðu mótað líf fólks um aldir. [4] [5] [6] [7]
Paray-le-Monial hefur verið lýst fyrir mér sem eins konar „Vatnaskógi Frakklands“, með vísan til þess hlutverks sem sumarbúðir KFUM hafa gegnt fyrir íslensk ungmenni. Sá samanburður hjálpar okkur að skilja aðdráttarafl staðarins: þangað kemur fólk til að biðja, læra, eignast vini og styrkjast í trúnni. Eitt lítið atvik úr ferðinni hefur vakað í minningunni. Heill skátaflokkur beið kurteislega eftir því að við fjölskyldan gengjum á undan.
Það fer vel á því að á stað sem tengist svo náið kærleika hjarta Jesú skuli minning ferðamanns líka snúast um einfalda góðvild. Boðskapurinn sem Margrét María miðlaði fær einmitt áþreifanlega merkingu þegar hann mótar framkomu okkar við annað fólk.
Hvað merkir að heiðra hjarta Jesú?
Virðingin fyrir hjarta Jesú á sér eldri rætur en reynslu Margrétar Maríu. Hún sprettur úr guðspjöllunum og íhugun kirkjunnar á kærleika Krists, meðal annars frásögn Jóhannesarguðspjalls af síðusárinu, sem blóð og vatn runnu úr (Jóh 19,34). Margrét María varð þó einn helsti boðberi þessarar trúariðkunar og hafði mikil áhrif á þá mynd sem hún tók á síðari öldum. [8]
Þegar kirkjan heiðrar hjarta Jesú beinist tilbeiðslan að Kristi sjálfum. Hjartað vísar til kærleika hans, bæði guðlegs og mannlegs: þess kærleika sem birtist í umhyggju hans fyrir sjúkum og útskúfuðum, fyrirgefningu syndara og sjálfsgjöfinni á krossinum. Í alfræðibréfinu Dilexit nos frá 2024 fjallar Frans páfi um þennan auð trúarinnar og minnir jafnframt á að grundvöllur hjartadýrkunarinnar sé ekki einkareynsla einstakra dýrlinga, heldur kærleikur Krists sem kirkjan hefur tekið við í fagnaðarerindinu. [8]
Í frásögnum Margrétar Maríu er einnig rík áhersla á yfirbót: að svara vanþakklæti með þakklæti og kærleiksleysi með kærleika. Það getur fengið einfalt og áþreifanlegt form í daglegu lífi. Við getum gefið okkur tíma til bænar, nálgast sakramentin af einlægni, leitað sátta og sinnt þeim sem finna til einmanaleika eða höfnunar. Þannig getur íhugun kærleika Jesú mótað það hvernig við komum fram við aðra.
Frá Golgata til Hallgríms og Margrétar Maríu
Íslenskum lesendum kann boðskapur Margrétar Maríu að vera nær en þeir gera sér grein fyrir. Í 48. Passíusálmi sínum, „Um Jesú síðusár“, yrkir séra Hallgrímur Pétursson:
Gegnum Jesú helgast hjarta
í himininn upp ég líta má.
Guðs míns ástarbirtu bjarta
bæði fæ ég að reyna og sjá.
Hryggðarmyrkrið sorgar svarta
sálu minni hverfur þá.
Þetta er 14. erindi sálmsins. Þessi orð spretta beint úr íhugun píslarsögunnar. Jóhannes guðspjallamaður segir frá því að hermaður hafi lagt spjóti í síðu hins krossfesta Jesú og blóð og vatn runnið út (Jóh 19,34). Í kristinni íhugunarhefð varð síðusárið að tákni þeirrar leiðar sem Kristur opnar manninum að lífi og samfélagi við Guð. [9] [8]
Í alfræðibréfinu Dilexit nos („Hann elskaði okkur“) frá 2024 rekur Frans páfi þessa íhugunarhefð frá fyrstu öldum kirkjunnar til miðalda. Í greinum 102–110 lýsir hann því hvernig kristnir menn sáu í opnu síðusári Krists uppsprettu náðar og lífs. Hjá kirkjufeðrunum tengdust blóðið og vatnið gjöf heilags anda og sakramentum kirkjunnar. Hjá heilögum Bernharði frá Clairvaux verður tengingin við hjartað sérstaklega skýr: sárin á líkama Krists opinbera innri kærleika hans og miskunn. Heilagur Bonaventura tengir síðan þessar áherslur saman og hvetur hinn trúaða til persónulegs samfélags við Krist, sem vinur mætir vini. [8]
Þessi íhugun fær hlýjan og persónulegan blæ hjá heilagri Gertrúði frá Helfta, sem lýsir því að hvíla við hjarta Krists og heyra slátt þess. Hjartslátturinn verður henni boð um endurnýjun í kærleika Guðs. Frans páfi bendir jafnframt á að guðræknin hafi tekið á sig ólíkar myndir í aldanna rás; síðari hjartadýrkun verður ekki einfaldlega lögð að jöfnu við allar eldri birtingarmyndir hennar. Samt má greina samfelldan þráð: kristinn maður íhugar sár Frelsarans, skynjar þar kærleika hans og þráir að svara honum með eigin lífi. [8] Í ljósi þessa arfs verður skyldleikinn milli ljóða Hallgríms og boðskapar Margrétar Maríu auðskiljanlegri.
Hjá Hallgrími fær þessi forni kristni arfur sterka ljóðræna mynd. Síðusárið verður að opnum dyrum þar sem hrjáð sál finnur athvarf, og hjarta Jesú verður líkt glugga sem hleypir birtu himinsins inn í sorg mannsins. Þetta sést sérstaklega vel í erindinu á undan: þar minnist Hallgrímur Nóa sem lítur upp um glugga arkarinnar í dimmu flóðsins. Síðan kemur játningin: „Gegnum Jesú helgast hjarta í himininn upp ég líta má.“ Í gegnum sár og þjáningu Frelsarans sér skáldið ást Guðs. [9]
Passíusálmarnir voru fyrst prentaðir árið 1666, áður en Margrét María greindi frá hinum þekktu sýnum sínum frá árunum 1673–1675. Hér er því um skyldleika innan eldri kristins trúararfs að ræða, en ekki áhrif hennar á sálma Hallgríms. [10] [1] Hjá henni fær kærleikur Krists áhrifamikla birtingu í sýninni af hjarta hans; hjá honum verður sama hjarta að lifandi mynd í orðlist og bæn. Bæði beina þau sjónum okkar að kærleikanum sem birtist á Golgata og bæði kalla þau á svar hjartans.
Hallgrímur lýkur sálminum með þeirri ósk að hans eigin innstu hjartans æðar elski, lofi og prísi Frelsarann. Þar mætast íslenska sálmaskáldið og franska klaustursystirin: í lönguninni til að svara kærleika Krists með kærleika. [9] Um þessa guðrækni er einnig fjallað í fyrri pistli Kirkjunets um stórhátíð hins alhelga hjarta Jesú, þar sem vers Hallgríms standa fremst. [11]
Að svara kærleika með kærleika
Líf Margrétar Maríu minnir okkur á að áhrif trúarinnar verða ekki alltaf mæld í sýnilegum afrekum. Hæglát nunna, sem átti erfitt með sum hversdagsleg verkefni og mætti lengi litlum skilningi, varð mörgum leiðarvísir að dýpra trausti á Krist. Boðskapur hennar beinir enn að okkur einfaldri spurningu: Hvernig svörum við þeim kærleika sem okkur hefur þegar verið sýndur?
Heilaga Margrét María, þú sem helgaðir líf þitt kærleika hjarta Jesú, bið fyrir okkur. Hjálpa okkur að treysta miskunn hans og svara kærleika hans með trúfesti í bæn og umhyggju fyrir náunganum. Jesús, hógvær og af hjarta lítillátur, móta hjörtu okkar eftir þínu hjarta. Amen.
Heimildir
- Michael Walsh (ritstj.), Butler’s Lives of the Saints: Concise Edition. Formáli eftir Basil Hume kardínála, O.S.B. Tunbridge Wells, Kent: Burns & Oates, 1985; endurprentanir 1985 og 1988. „St Margaret-Mary, Virgin (A.D. 1690)“, bls. 339–341. Byggt á síðunum úr eintaki höfundar. ↩
- Communauté de l’Emmanuel, „Sessions de l’Emmanuel“; Sanctuaire du Sacré-Cœur, „Les Sessions d’été“. Saga sumarsamkomnanna og starf fyrir ólíka aldurshópa. ↩
- Sanctuaire du Sacré-Cœur, „Scouts et guides d’Europe à Paray : ‘Dieu premier servi’“. Heimild um skátasamkomu á staðnum, ekki um skátaflokkinn sem höfundur hitti 2016. ↩
- Sanctuaire d’Ars, „Visitors“. Um helgistaðinn í Ars og slóðir heilags Jóhannesar Maríu Vianney. ↩
- Centre des monuments nationaux, „Histoire de l’abbaye de Cluny“. ↩
- Communauté de Taizé, „La communauté“. Um samfélagið og alþjóðlegar ungmennasamkomur þess. ↩
- Office de Tourisme de Paray-le-Monial, „Églises romanes en Charolais-Brionnais“. Meðal annars um Anzy-le-Duc og Semur-en-Brionnais. ↩
- Frans páfi, Dilexit nos, 24. október 2024. Einkum nr. 48–51, 78–84, 102–110 og 119–128. ↩
- Hallgrímur Pétursson, 48. Passíusálmur, „Um Jesú síðusár“, einkum erindi 5–7, 10–14 og 19. Texti á vefnum Hallgrímur Pétursson og Passíusálmarnir, eftir útgáfu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns frá 1996. ↩
- Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, „Prentlist og Passíusálmar í Hallgrímskirkju“. Um fyrstu prentun Passíusálmanna á Hólum 1666. ↩
- Kirkjunet, pistill um stórhátíð hins alhelga hjarta Jesú. ↩
Biblíutilvísanir: Jóh 19,31–37; Matt 11,28–30. Frásögnin af heimsókninni sumarið 2016 er persónuleg minning höfundar.
