09 júlí 2026

Heilagur Ágústínus Zhao Rong og félagar píslarvottar – 9. júlí

Hl. Ágústínus Zhao Rong og félagar. Mynd. ChatGPT

Kristin trú á sér langa, en ekki ávallt auðvelda, sögu í Kína. Frá fyrstu tengslum við Sýrland á 6. öld, til Jesúíta á 16. öld og áfram til nýlendutímans, hefur fagnaðarerindið hitt fyrir djúpa menningu og andlegan þroska – en líka tortryggni gagnvart því sem kemur að utan. Í dag minnist kirkjan 120 píslarvotta sem létu lífið í Kína á tímabilinu frá 1648 til 1930. Meðal þeirra eru 87 innfæddir kínverskir kristnir og 33 erlendir trúboðar, sem voru teknir í tölu heilagra af Jóhannesi Páli páfa II árið 2000 fyrir vitnisburð sinn um lifandi trú og djúpa sjálfsafneitun.

Af hverju voru kristnir ofsóttir?

Frá upphafi voru kristnir lítill og viðkvæmur minnihlutahópur í Kína. Stundum voru þeir liðnir, en oft voru þeir ofsóttir, sérstaklega þegar stjórnvöld óttuðust áhrif erlendra afla. Á 17. og 18. öld spruttu slíkar ofsóknir fram á víð og dreif. Í sumum tilfellum var það vegna þess að kristnir vildu ekki taka þátt í dýrkun forfeðra, sem var talin skylda samkvæmt kínverskum siðum. Í öðrum tilvikum var litið á þá sem leynifélag, einhvers konar uppreisnarhreyfingu eða útlenska ógn.

Kínverskur hermaður Zhao Rong varð vitni að kyrrð og þolgæði franska biskupsins Jóhannesar Dufresse á leið hans til aftöku. Þetta snerti hann djúpt. Hann bað um skírn, tók sér nafnið Ágústínus, og síðar prestsvígslu. Hann varð fyrsti kínverski sóknarpresturinn, og árið 1815 var hann sjálfur handtekinn, pyntaður og líflátinn fyrir trú sína. Trú hans var djúp, kyrr og eldheit. Hann varð andlit þess hóps sem minnst er í dag.

Ópíum, nýlendustefna og andúð á kristni

Eftir daga Ágústínusar ágerðist tortryggnin gagnvart kristnum. Á 19. öld gerðu Evrópuríki – einkum Bretland og Frakkland – innrásir í Kína í ópíumstríðunum (1839–1842 og 1856–1860) sem voru vopnuð átök milli Kína og Vesturlanda, einkum Bretlands. Ástæðan var sú að kínversk yfirvöld vildu stöðva ópíuminnflutning, þar sem efnið hafði valdið víðtækri fíkn og samfélagslegu niðurbroti. Bretar vildu hins vegar verja hagsmuni sína í viðskiptum með ópíum, sem var ræktað á Indlandi og flutt til Kína fyrir silfur og te.

Í dag, þegar fíkniefnafaraldur herjar á samfélög um heim allan, er átakanlegt að minnast þess að þessi heimsplága á sér djúpar rætur í gróðahyggju nýlendutímans – þegar vestræn ríki stuðluðu sjálf að útbreiðslu ópíums með hervaldi. Kínversk andstaða við þetta var réttmæt, en því miður beindist reiðin oftar en ekki að saklausu fólki – þar á meðal kristnum Kínverjum sem höfðu engin bein tengsl við ópíumviðskiptin.

Þegar Kína tapaði, neyddust keisarayfirvöldin til að undirrita ósanngjarna samninga sem opnuðu landið fyrir verslun og trúboði Vesturlanda. Þetta olli djúpri niðurlægingar- og vanmáttarkennd meðal kínverskra stjórnvalda og almennings, og kristni var nú í auknum mæli tengd við pólitíska niðurlægingu og útlend yfirráð. Kristnir trúboðar voru margir góðviljaðir, en þeir nutu verndar vopnaðra hersveita nýlenduvelda og voru því oft álitnir hluti af yfirgangi Vesturlanda. Kínverskir kristnir voru jafnvel taldir svikarar við eigin menningu – óhæfir til að sýna keisaranum og forfeðrunum þá virðingu sem átti að vera grundvöllur siðgæðis.

Árið 1900 náði þessi and-kristna hreyfing hámarki í Boxarauppreisninni, þegar kínverskir uppreisnarmenn reyndu að hrekja vestræn áhrif úr landinu með ofbeldi. Þeir drápu hundruð, ef ekki þúsundir, kristinna – bæði útlendinga og kínverskra – brenndu kirkjur og trúboðsstöðvar. Meðal þeirra sem létu lífið í þeirri bylgju voru börn, fjölskyldur og prestar sem neituðu að afneita trú sinni.

Blóð píslarvottanna ber vitni um kristna trú

Í prédikun sinni við helgun kínversku píslarvottanna árið 2000 beindi heilagur Jóhannes Páll II sjónum okkar að því sem er kjarninn í sögu þeirra. Hann hóf orð sín á bæn Jesú í Jóhannesarguðspjalli: „Helga þá í sannleikanum. Þitt orð er sannleikur.“ (Jóh 17,17) Páfinn segir að þessi bæn Krists hafi ræst í lífi Ágústínusar Zhao Rong og 119 félaga hans. Þau voru ekki fyrst og fremst hetjur mannkynssögunnar heldur menn og konur sem Guð helgaði í kærleika sínum og urðu lifandi vitni um mátt fagnaðarerindisins.

Til að sýna hvað þessi trúfesta fól í sér rifjaði Jóhannes Páll II upp orð tveggja ungra píslarvotta. Hin fjórtán ára gamla Ann Wang stóð frammi fyrir aftöku eftir að hafa hafnað því að afneita Kristi. Með bros á vör sagði hún: „Dyr himins standa öllum opnar,“ og endurtók síðan þrisvar sinnum hið heilaga nafn: „Jesús.“ Átján ára gamall Xi Guizi hafði þegar misst hægri handlegginn þegar hann kallaði óttalaus til pyntara sinna: „Hver hluti af holdi mínu, hver dropi af blóði mínu mun segja yður að ég er kristinn.“ Þessi orð hafa varðveist sem einhver áhrifamesti vitnisburður um trúfesti kínversku kirkjunnar.

Páfinn lagði jafnframt áherslu á að píslarvottarnir væru afar ólíkur hópur. Þar voru prestar, trúmenn og leikmenn, karlar og konur, ungmenni og aldraðir, alls 87* kínverskir kristnir sem létu lífið á ýmsum tímum vegna trúar sinnar. Við hlið þeirra stóðu 33 trúboðar sem höfðu yfirgefið ættland sitt til að boða Krist í Kína. Jóhannes Páll II minnti á að þeir hefðu ekki komið sem landvinningamenn heldur leitast við að tileinka sér kínverska menningu og elska fólkið sem þeir þjónuðu. Grafir þeirra í Kína væru tákn þess að þeir hefðu endanlega orðið hluti af þeirri þjóð sem þeir vildu þjóna. Þessi hugsun birtist skýrt í orðum Fransiskusar Fogolla biskups rétt áður en hann var tekinn af lífi: „Vér höfum aldrei beitt neinn ranglæti. Þvert á móti höfum vér gert mörgum gott.“

Trúfesti sem blómstraði í blóði

Þessi orð páfans minna okkur á að saga kínversku píslarvottanna er ekki aðeins saga ofsókna heldur einnig saga kærleikans. Blóð þeirra varð ekki sáðkorn haturs heldur vitnisburður um að kærleikur Krists er sterkari en ótti, sterkari en ofbeldi og sterkari en dauðinn sjálfur. Þannig sjáum við að bæn Krists hefur ekki misst gildi sitt: „Helga þá í sannleikanum. Þitt orð er sannleikur.“ Guð heldur enn áfram að helga þjóna sína í sannleikanum og orð hans er enn sannleikurinn sem engin ofsókn getur þaggað niður.

Heilagur Ágústínus Zhao Rong og félagar hans voru hvorki landráðamenn né róttæklingar, heldur báru vitni um trú sína og um það að ekkert jarðneskt vald getur upprætt þá huggun sem Kristur veitir. Líf þeirra sýnir að trú og þjóðerni eru ekki andstæður. Þau elskuðu land sitt, menningu sína og þjóð, en umfram allt elskuðu þau Krist og sannleikann. Þau sáu enga mótsögn í því að vera bæði kínversk og kristin, heldur innsigluðu þá sannfæringu með lífi sínu og dauða.

Bæn

Drottinn Jesús Kristur,
þú sem gekkst með píslarvottum þínum í gegnum eldraunir og ofsóknir,
lát okkur læra af þeim hugrekki, trúfesti og hljóðláta elsku.
Gef okkur hugrekki til að vitna um þig í samfélagi sem stundum lýsir tortryggni eða kulda.
Við biðjum þig sérstaklega fyrir kristnum í Kína í dag:
Verndaðu þá, styrktu þá, og gerðu þá að lifandi vitnum verðmæta þinna.
Megi blóð hinna heilögu kínversku píslarvotta styðja og styrkja kirkju þína í austurheimi og alls staðar.
Amen.

--

* í prédikuninni talar Jóhannes Páll II um 85 kínverska karla og konur vegna þess að á þeim tíma voru tveir hinna 87 enn taldir í öðrum flokki. En eftir endanlega talninguna sem kirkjan notar í dag eru þeir 87. 

Heilagur Sarbel Makhluf, prestur og einsetumaður - minning 24. júlí

Heilagur Sarbel Makhluf prestur og einsetumaður Hátt uppi í fjöllum Líbanons, þar sem sedrustrén sem nefnd eru í Biblíunni teygja sig til hi...