![]() |
| Birting meyjarinnar í Fatíma |
13. maí er minningarhátíð heilagrar Maríu meyjar í Fatíma í Portúgal. Þá er þess minnst að hinn 13. maí 1917 birtist María mey þremur börnum. Það var upphaf atburðarásar sem átti eftir að breyta lífi milljóna manna. Í dag minnist kirkjan þessarar opinberunar sem kallaði kristna menn til iðrunar, bænar og sérstakrar fyrirbænar fyrir Rússlandi.
Hvað og hvar er Fatíma?
Fatíma er lítið þorp staðsett í miðhluta Portúgals, um 130 km norður af Lissabon. Þrátt fyrir að hafa verið óþekkt áður en opinberanirnar áttu sér stað, hefur það síðan orðið einn mikilvægasti pílagrímsstaður kaþólskra í Evrópu. Þar er nú mikill helgidómur, Santuário de Fátima, sem dregur að sér mikinn fjölda gesta ár hvert.
Birtingarnar í Fatíma
Birtingarnar í Fatíma áttu sér stað sex sinnum, 13. hvers mánaðar frá maí og þangað til í október 1917. Vitnin voru þrjú börn: Lúsía dos Santos (fædd 1907) og yngri frændsystkin hennar, Frans Marto (fæddur 1908) og Jasinta Marto (fædd 1910). María opinberaði þeim boðskap um synd, iðrun og nauðsyn bæna og fórna. Skilaboð Maríu voru einföld, en krefjandi: að iðrast af hjarta, biðja rósakransinn daglega og leggja sitt af mörkum til að frelsa sálir frá glötun. Þau börn sem urðu vitni að þessu báru það af mikilli alvöru – og orð þeirra urðu til þess að þúsundir manna tóku að streyma til Fatíma.
Sérstök beiðni um Rússland
Eitt af mikilvægum atriðum í skilaboðum Maríu var beiðni hennar um að páfinn vígði Rússland Hinu flekklausa hjarta Maríu. Hún sagði að ef það yrði gert í einlægni og sameiningu, myndi Rússland snúa frá villu síns vegar og friður koma yfir heiminn. Ef ekki, myndi Rússland „dreifa villukenningum sínum um heim allan“ og kalla yfir heiminn stríð og ofsóknir gegn kirkjunni. Börnin, sem höfðu litla sem enga þekkingu á landafræði, skildu ekki hvað Rússland var og héldu upphaflega að það væri kona. Á portúgölsku er Rússland = Rússia sem hljómar eins og kvenmannsnafn á rómönsku máli. Þetta sýnir sakleysi þeirra og hversu óvænt skilaboðin voru í þeirra augum.
Þessi skilaboð voru mjög áhrifamikil, sérstaklega í ljósi þess að byltingar voru að eiga sér stað í Rússlandi árið 1917, sem leiddu til stofnunar Sovétríkjanna og mikillar kúgunar á trúfrelsi. Margir kaþólikkar túlkuðu þetta sem viðvörun um að kommúnisminn myndi verða til mikillar ógæfu og kristindómur yrði ofsóttur. Í kjölfarið hvatti kaþólska kirkjan ítrekað til helgunar Rússlands samkvæmt fyrirmælum Maríu í Fatíma.
Píus páfi XII helgaði heiminn, þar á meðal Rússland, hjarta Maríu árið 1942. Síðar, árið 1984, helgaði Jóhannes Páll II heiminn og Rússland á ný með sérstökum hætti, og margir trúa því að þessi athöfn hafi átt þátt í hruni Sovétríkjanna árið 1991. Þrátt fyrir það halda sumir því fram að Rússland hafi enn ekki verið helgað á fullnægjandi hátt eða að hin raunverulega umbreyting þess eigi enn eftir að eiga sér stað.
Kraftaverk sólarinnar
Þessi frásögn um Maríu mey frá Fatíma hefði aldrei náð langt og væri líklega gleymd af flestum ef ekki hefði komið til ótrúlegt undur. Þann 13. október 1917, í síðustu opinberuninni, hafði mikill mannfjöldi safnast saman við Cova da Iria. Fólk kom bæði af trú og forvitni, og meðal viðstaddra voru einnig efasemdarmenn, fréttamenn og þeir sem vildu afsanna allt saman. Þrátt fyrir hellirigningu sást hvernig sólin virtist dansa á himni, sveiflast og skipta um lit, áður en hún virtist hrapa í átt að jörðu. Fólk öskraði, bað og taldi heimsendi runninn upp. Síðan virtist allt ganga til baka.
Þetta atvik varð kunnugt sem kraftaverk sólarinnar og er eitt þekktasta undur 20. aldar sem tugþúsundir voru vitni að. Myndir frá þessum atburði er víða að finna á netinu, en sjálft fyrirbærið var þess eðlis að engin ljósmynd gat fangað það sem vitnin sögðust hafa upplifað.
Börnin þrjú og örlög þeirra
Frans og Jasinta Marto lifðu ekki lengi eftir birtingarnar. Þegar spænska veikin svokallaða, mannskæð farsótt sem gekk yfir heiminn eftir fyrri heimsstyrjöldina, barst til Portúgals, veiktust þau bæði og létust ung, eins og María hafði samkvæmt frásögnum boðað.
Frans var tíu ára þegar hann lést árið 1919 og Jasinta aðeins níu ára þegar hún lést árið eftir. Kirkjan hefur síðar litið á trú þeirra, fórnfýsi og einfalda helgun sem sérstakan vitnisburð, og Frans páfi tók þau bæði í tölu heilagra árið 2017.
Lúsía lifði hins vegar langa ævi. Hún varð karmelnunna og helgaði líf sitt bæn og íhugun. Hún lést árið 2005, 97 ára að aldri. Kirkjan hefur hafið ferli í átt að mögulegri dýrlingaviðurkenningu hennar, og hún ber nú titilinn Virðingarverð.
13. maí 1981 – tilræðið við páfann
Einmitt á þessum degi, hinn 13. maí árið 1981, var skotið á Jóhannes Pál II páfa á Péturstorginu í Róm. Kúlur hæfðu hann og hann særðist lífshættulega. Eftir aðgerð kom í ljós að ein kúla hafði farið mjög nærri hjartanu, en beygði lítillega þannig að hún rauf hvorki hjarta né mikilvægar æðar. Læknar sögðu að það væri kraftaverki líkast að hann hefði lifað af. Sjálfur sagði páfinn síðar:
„Ein hönd skaut, önnur leiðbeindi kúlunni.“
Með því átti hann við að mannleg hönd hefði skotið, en María mey í Fatíma hefði verndað hann með því að beina kúlunni frá banvænum skaða. Árið eftir fór hann sjálfur í pílagrímsferð til Fatíma til að þakka fyrir lífgjöfina, og síðar lét hann setja eina kúlu úr tilræðinu í kórónu Maríustyttunnar í helgidóminum þar. Þannig tengdist Fatíma ekki aðeins fyrri heimsstyrjöldinni og byltingaröld 20. aldar, heldur einnig persónulegri trúarsögu eins áhrifamesta páfa samtímans.
Nafnið Fatíma og óvænt brú til íslam
Það er athyglisvert að staðurinn þar sem þessar birtingar áttu sér stað ber ekki kristið nafn heldur arabískt. Nafnið Fatíma vísar til Fatimu, dóttur Múhameðs spámanns, sem er ein virtasta kona íslamskrar hefðar.
Nafnið á sér sögulegar rætur í tíma múslimskra áhrifa á Íberíuskaga, þegar stór svæði Spánar og Portúgals voru undir stjórn múslima. Samkvæmt gamalli þjóðsögu er þorpið kennt við unga múslimska konu að nafni Fatima sem síðar tók kristni, þó slík saga sé fremur hluti af arfsögn en öruggri sagnfræði.
Þessi tenging hefur þó vakið forvitni margra. María mey nýtur nefnilega einnig mikillar virðingar í íslam. Hún er nefnd Maryam í Kóraninum, eina konan sem þar er kölluð með nafni, og heil súra, sú 19. ber nafn hennar. Múslimar trúa því að Jesús (Isa) hafi fæðst af mey, þótt skilningur þeirra á eðli hans sé annar en kristinna manna. (Súra 19,16-34)
Af þessum sökum hafa sumir séð táknræna merkingu í því að boðskapur Maríu um bæn, iðrun og frið skyldi koma fram einmitt á stað sem ber nafn sem einnig er heilagt í íslamskri hefð. Hvort sem menn líta á það sem tilviljun eða dýpri ráðagerð forsjónarinnar, er þessi tenging áhugaverð. Hún minnir á að jafnvel þar sem trúarbrögð skilja að, geta líka leynst óvæntir snertifletir.
Þögul köllun til okkar tíma
Birtingarnar í Fatíma eru meira en saga úr fortíðinni. Þær tala inn í mannlega reynslu af ótta, stríði, óróa og leit að von. Þær urðu í skugga heimsstyrjaldar og voru síðar túlkaðar í ljósi kommúnismans og trúarofsókna hans. Þær lifðu áfram í meðvitund kirkjunnar á tímum kalda stríðsins. Og enn í dag, þegar heimurinn býr við ný átök og nýjar ógnir, vekja þær spurningar:
Hvað merkir iðrun í heimi sem kennir sífellt öðrum um?
Hver er máttur bæna í heimi þar sem menn treysta einkum á rétt hins sterka, valdbeitingu og vopn?
Hvað merkir friður þegar þjóðir standa aftur andspænis hvor annarri í tortryggni?
Þótt þúsundir hafi upplifað og sagt frá undrinu í Fatíma breyttist heimurinn ekki skyndilega. Stríðum lauk ekki fyrir fullt og allt. Ofbeldi, kúgun og óeining héldu áfram. Það minnir á orð Abrahams í dæmisögu Jesú um ríka manninn og Lasarus: „Ef þeir hlýða ekki Móse og spámönnunum láta þeir ekki heldur sannfærast þótt einhver rísi upp frá dauðum“ (Lúk 16,31).
Kristin trú hefur aldrei kennt að undur neyði menn til trúar. Vandi boðunarinnar er ekki skortur á sönnunargögnum eða undrum — heldur skortur á vilja til að hlusta og snúa við. Undur geta vakið athygli, opnað glugga, hrært við samvisku — en þau geta ekki komið í stað hins frjálsa svars mannsins við Guði. Hvort sem menn líta fyrst og fremst á þessa atburði sem kraftaverk, spádóm eða trúarlega táknsögu þá stendur eftir þessi einfalda köllun: að snúa hjarta sínu að Guði, biðja fyrir heiminum og gefast ekki upp á friðinum.
Bæn til Maríu meyjar í Fatíma
María, móðir Jesú og móðir okkar, þú sem birtist í Fatíma til að kalla heiminn til iðrunar og friðar, kenndu okkur að treysta á kærleika Guðs og segja eins og þú: „Verði mér eftir orði þínu.“ Hjálpa okkur að biðja rósakransinn daglega í trú og kærleika, og leið okkur nær Syni þínum, Jesú Kristi. Amen.
---
