![]() |
| Heilög Elísabet frá Ungverjalandi |
Hinn 17. nóvember minnist kirkjan heilagrar Elísabetar frá Ungverjalandi, sem lifði stuttu en óvenjulega innihaldsríku lífi. Hún var konungsdóttir, giftist ung að árum Loðvíki, landgreifa í Þýringalandi (Thüringen), og ól honum þrjú börn. Hún naut auðæfa og virðingar við hirðina en helgaði æ meira af tíma sínum og kröftum hinum fátæku og sjúku. Eftir að hún varð ekkja tók hún upp enn einfaldari lífshætti og helgaði sig þjónustu við þá sem minnst máttu sín. Hún lést árið 1231, aðeins 24 ára að aldri. [1]













