Hin myrka nótt sálarinnar er það rita hl. Jóhannesar af Krossi sem ætíð hefur notið hvað mestra vinsælda meða lesanda hans. Hér birtist hann okkur sem sannur andlegur faðir og lýsir angist sálarinnar meðan hún leitar Drottins í elskuríkri þrá sinni. Grunnstefið er: Hvar hefur þú hulið þig, Guð minn, og látið mig eftir í tárum?
Þegar helgar menjar Fílómenu fundust í rómversku katakombunum árið 1802 var ljóst að hér var um einn píslarvotta fornkirkjunnar að ræða. Blóð hennar var varðveitt í keri sem múrað hafði verið inn í vegg. Á komandi árum átti hún eftir að framkvæma fjölmörg kraftaverk sem staðfestu að hér var um eina hinna heilögu kirkjunnar að ræða.