« 16 ára piltur kveður skopmyndir af Múhameð ástæðu þess að hann drap kaþólskan prest Af óhlutdrægni fjölmiðla um málefni samkynhneigðra »

22.01.06

  16:16:13, Skrásetjari: Jon Valur Jensson   , 588 orð  
Flokkur: Málefni samkynhneigðar á sviði þjóðfélags og kirkju

Yfirlýsing 20 trúfélaga og 20 einstaklinga vegna stjórnarfrumvarps um málefni samkynhneigðra

Eftirfarandi yfirlýsing samvinnuhóps margra kristinna trúarsamfélaga vegna stjórnarfrumvarps um málefni samkynhneigðra hefur verið send hinu háa Alþingi:

Við undirrituð lýsum eindregnum stuðningi við biskup Íslands, þegar hann segir að hjónaband sé sáttmáli milli eins karls og einnar konu, og teljum að nú beri að standa vörð um hina upprunalegu fjölskyldumynd og velferð fjölskyldna og barna í íslensku samfélagi. Um leið hörmum við ....

Um leið hörmum við það fráhvarf frá kristnum siðferðisgildum sem ríkistjórn Íslands sýnir með frumvarpi til laga um réttarstöðu samkynhneigðra. Frá því að þjóðin gerðist kristin, hefur hún haft fyrrnefnd siðferðisgildi sem grundvallarviðmiðun í löggjöf landsins.  Að lögleiða aðra skipan er fráhvarf frá skíru og kláru boði Heilagrar ritningar og í andstöðu við siðfræði kristinnar kirkju í heild sinni.

Með tilvísun til þeirra greina frumvarpsins sem fjalla um ættleiðingar barna til para í staðfestri samvist og tæknifrjóvgun hjá konum í staðfestri samvist, þá teljum við í ljósi kristinnar grundvallarafstöðu okkar hvort tveggja vera fráleitt.  Við teljum að réttur barna sé skertur með nefndu frumvarpi og samband barns við föður og móður ekki virt. Við minnum á að samkvæmt upphafsgrein Barnalaganna, nr. 76/2003, á barn rétt á að þekkja báða foreldra sína.

Breytingartillögu við frumvarpið, sem felur í sér heimild forstöðumanna trúfélaga til hjúskaparvígslu tveggja einstaklinga af sama kyni, teljum við fráleita og höfnum henni alfarið. Rök okkar eru þau sömu og áður: Hin boðaða löggjöf fer þvert gegn kristinni kenningu um hjónabandið og samband foreldra og barns.

Þau trúfélög og trúarhópar sem standa að þessu (og gera það í heild) eru:

Hvítasunnukirkjan Fíladelfía, Reykjavík,
Hvítasunnukirkjan í Keflavík,
Hvítasunnukirkjan á Akureyri,
Hvítasunnukirkjan Betel, Vestmannaeyjum,
Hvítasunnukirkjan Salem, Ísafirði,
Hvítasunnukirkjan Selfossi,
Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti,
Íslenska Kristskirkjan, Grafarvogi,
Fríkirkjan Kefas,
Krossinn í Kópavogi,
Fríkirkjan Vegurinn,
Betanía, kristið samfélag,
Hjálpræðisherinn á Íslandi,
Sjónarhæðarsöfnuður, Akureyri,
Akurinn, kristið samfélag, Kópavogi,
Samfélag trúaðra, Reykjavík,
Samfélagið Hörgshlíð 12,
Vinyard, kristið samfélag, Reykjavík,
Aðventkirkjan á Íslandi,
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan: Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins í Reykjavík (Ísland – prestur Timur Zolotuskiy)

Og þar að auki einstaklingar í öðrum trúfélögum:

Anton Ingimarsson, kt 1108595709, verslunarstjóri.
Dr. Arngrímur Jónsson, fyrrv. sóknarprestur.
Eva S. Einarsdóttir, ljósmóðir í Kópavogi.
Flóki Kristinsson, sóknarprestur á Hvanneyri.
Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti.
Guðlaugur L. Aðalsteinsson, kt 2611602779,
og k.h. Kolbrún B. Jónsdóttir
Guðmundur Óli Ólafsson, fyrrv. prófastur í Skálholti.
Guðmundur Pálsson, sérfræðingur í heimilislækningum.
Gústaf Níelsson, sagnfræðingur í Reykjavík,
og k.h. Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, forstjóri.
Halldór S. Gröndal, fyrrv. sóknarprestur.
Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkjunnar.
Jón Oddgeir Guðmundsson, Akureyri.
Jón Valur Jensson, guðfræðingur í Reykjavík.
Jón Rafn Jóhannsson OCDS (Karmelítareglunni, kaþ. kirkjunni)
Laufey Jensdóttir, 210524-3989, húsmóðir.
Lilja Kristjánsdóttir húsmóðir, fyrrv. kennari.
Dr. Loftur R. Gissurarson, gæðastjóri OR, Mosfellsbæ.
Patrick Breen, sóknarprestur kaþólskra á Akureyri.

No feedback yet

Ábyrgðarmaður: Jón Valur Jensson guðfræðingur.

Önnur blogg sama höfundar: [jonvalurjensson.blog.is]
[jvj.blog.is]
[krist.blog.is] (þátttaka)
[lifsrettur.blog.is]

Leit

  XML Feeds

multi-blog engine