Asianews - Faisalabad. Kristnir og múslimar hafa sameinast í umhverfisvernd. Biskuparáðið gefur út græna stefnu sem opin er öllum trúuðum. Blaðamenn múslima kalla framtakið „jákvætt skref“. Kaþólskur prestur segir að umhyggja fyrir umhverfinu sé verkefni sem Guð úthlutar sérhverjum manni.
Sjá nánar hér: http://www.asianews.it/index.php?l=en&art=15630&size=A
Asianews greinir frá því að hundrað kaþólskar fjölskyldur á í Manila erkibiskupsdæmi hittist hverja helgi til að lesa biblíuna saman. Markmiðið er að styrkja trúna og miðla henni til barnanna.
Í dag er annar í hvítasunnu og munu margir eflaust njóta dagsins og frísins því það viðrar vel hér á Suðurlandi. Líklega mun þó ekki vera fjölmennt í messum þó svo upprunalegur tilgangur með þessum helgidegi hafi verið sá að gefa fólki tækifæri til að sækja helgihald. Margir hafa líka eflaust sótt kirkju í gær og þannig uppfyllt messuskyldu sína á þessari kirkjuhátíð.
Fréttaþjónustan Zenit.org hefur greint frá því að Elín Flygenring hafi verið skipaður sendiherra Íslands hjá Páfagarði. Benedikt páfi tók á móti henni og flutti við það tækifæri ávarp til hennar og íslenskra stjórnvalda. Fyrirsögn ávarpsins var: „Verndið og styðjið mannréttindi heima og að heiman“. Ávarp páfa til íslenskra stjórnvalda er að finna í heild sinni hér: [Tengill]
Fyrir um einu ári lauk listakonan Sigga á Grund við gerð útskorinnar styttu af Þorláki helga. Styttan er um 47 sm. há og skorin út úr sérvöldum kjörviði. Þeir sem þekkja til Siggu á Grund vita að hún er útskurðarmeistari sem hefur gert marga kosta- og kjörgripi sem bera vitni nákvæmni, einstöku handbragði og listrænu innsæi. Við Sigga erum fyrrum sveitungar og nágrannar og hún féllst góðfúslega á að taka þetta verkefni að sér að minni beiðni. Ástæða þess að ég réðst í þetta framtak var sú að mér þótti vanta styttu af Þorláki helga sem hægt væri að gera afsteypur af. Þó til sé stytta af Þorláki helga í Kristskirkju í Landakoti þá er hún of stór til að hún henti sem frummynd fyrir afsteypu.
Allra heilagra messa er 1. nóvember nk. og allra heilagra messa er 2. nóvember. Á allra heilagra messu verða vökumessur í Kristskirkju í Landakoti og Maríukirkju í Breiðholti. Messan í Kristskirkju hefst kl. 18 og í Maríukirkju kl. 18.30.
Eigum við að biðja fyrir framliðnum?
„Biblían kennir að það sé rétt og hjálpsamlegt að biðja fyrir þeim sem dánir eru. Sálir þeirra sem deyja í náð Guðs en eiga eftir að hreinsast af syndum sínum dvelja um hríð í hreinsunareldi.
Evrópuþingið samþykkti 24. sept. sl. ályktun þar sem það fordæmdi ofsóknirnar gegn kristnum í Orissa á Indlandi. Þetta var liður í undirbúningi viðræðna ESB við Indland sem hófust í Frakklandi þrem dögum síðar. Patríarkinn af Konstantínópel, Bartólómeus I ávarpaði þingið sama dag og ræddi um gildi trúarinnar fyrir Evrópu og Tyrkland og möguleikanum á að byggja brýr milli menningarheima fyrir tilstilli trúarbragðanna. Nokkrir þingmenn Evrópuþingsins úr röðum græningja, frjálslyndra og sósíalista gengu af þingi til að mótmæla ávarpi patríarkans. Belgískur þingmaður úr röðum sósíalista sem hafði forystu fyrir útgöngunni gagnrýndi patríarkann sem og Benedikt páfa XVI fyrir að halda fram að siðferðisleg gildi Evrópu væru kristileg siðferðisgildi. Hún bætti við að ef ekki væri gætt aðskilnaðs ríkis og trúarbragða gætu ofbeldisöfl gengið á lagið. Á þessum forsendum hvatti hún aðra þingmenn til að sniðganga ávarp patríarkans. [Tengill]

Nýleg ræða erkibiskupsins af Kantaraborg Rowan Williams sem hann hélt í Lourdes í Frakklandi hefur valdið titringi meðal hóps anglíkana sem vilja halda sig við hefðir mótmælenda. Erkibiskupinn talaði m.a. um birtingar meyjarinnar í Lourdes og vitnaði til hennar sem móður Guðs. Hann fór einnig lofsamlegum orðum um dýrlingana og talaði um gott fordæmi þeirra. Sjá hér: [Tengill] Talsmaður hópsins sagði hegðun erkibiskupsins vera harmræna og visaði til hans sem strengjabrúðu páfa.
Ofstækismenn úr röðum hindúa brenndu í síðustu viku systraheimili Kærleiksboðberanna af reglu Móður Teresu í Kandhamal svæði í Orissa á Indlandi. Á fimmtudagskvöldið var réðust um 700 manns vopnaðir öxum, sverðum og járnstöngum á systraheimilið og kveiktu í því. Systurnar voru flúnar og sakaði því ekki. Ofbeldisalda gegn kristnum hefur riðið yfir Indland í kjölfar vígs á róttækum leiðtoga hindúa sem skæruliðar kommúnista hafa lýst á hendur sér. [Tengill]
_(550_x_300).jpg)
Í kjölfar ofbeldisöldunnar í Orissa á Indlandi sem braust út í síðasta mánuði hafa hundruð kristinna verið neydd til að afneita trúnni og játa hindúatrú. [Tengill] Sjónarvottur greinir frá því að ungur kaþólskur maður hafi verið grafinn lifandi. [Tengill]
Asianews.it - Páfagarði. „Sannur aðskilnaður kirkju og ríkis felur ekki í sér að trúnni sé hafnað heldur það að trúin verður trygging frelsis okkar og sjálfstæðis í veraldlegum málum.“ Þetta sagði Benedikt páfi XVI í Páfagarði eftir heimsókn sína til Lourdes í Frakklandi og bætti við að fyrst Jesús segði að gefa ætti keisaranum myntina með mynd keisarans að þá ættu fingraför herra lífsins að finnast á hjarta mannsins.

Hann talaði hlýlega um Frakkland þar sem menningarleg þróun hefði verið nátengd kirkjunni allt frá 2. öld. „Og það er athyglisvert að í þessu umhverfi kom fram þörfin fyrir heilbrigðan aðskilnað stjórnmála og trúarlegra mála.“ [Tengill]
Asianews.it - Mumbai. Ofbeldisaldan gegn kristnum sem byrjaði í Orissa á Norð-Austur Indlandi 23. ágúst hefur nú breiðst út til Madya Pradesh, Karnataka og Kerala. Snemma í morgun var ráðist á kirkju og reynt að kveikja í henni og einnig réðst hópur manna með loftbyssur á Karmelklaustur.
.jpg)
14. september var ráðist á 20 kirkjur. Róttækir hindúar kenna kristnum um morð á hindúaleiðtoga sem skæruliðar maóista réðu af dögum. Í kjölfarið hefur markvisst verið ráðist á kirkjur, skóla, félagsmiðstöðvar og heimili. 45 hafa látið lífið í Orissa, 18.000 eru sagðir sárir. 5 er saknað. 56 kirkjur, 11 skólar og 4 skrifstofur hafa verið eyðilagðar. 50.000 manns eru á flótta og af þeim eru um 40 þús. í felum í skógum. 12.000 eru í flóttamannabúðum. [Tengill]
Sunnudaginn 14. september sl. á krossmessu á hausti var hin árlega pílagrímsganga gengin frá hringtorginu við Hveragerði að kapellu hins helga kross í Riftúni í Ölfusi. Þetta er um 6 km. ganga. Að þessu sinni var veðurútlitið ekki gott og því gengu aðeins 11 manns alla leiðina en fjölmennt var í messunni og var kapellan þéttsetin. Krossinn uppi á hamrinum brotnaði í óveðri síðasta vetur en gert hefur verið við hann en hann er nú nokkru styttri en hann var.
Indcatholicnews.com - Montecassino. Vonsvikinn Ítali hóf mótmælastöðu fyrir utan nunnuklaustur fyrir sunnan Róm eftir að fyrrverandi kærasta hans gekk í klaustrið. Daniel Briatore 21 árs gamall hengdi borða á klausturvegginn í von um að æskuástin hans sem sagði honum upp mánuði fyrr myndi snúa aftur. [Tengill]
Asianews.it - Manila. Á Filippseyjum er nú hart tekist á um frumvarp sem miðar að því að draga úr fjölgun þjóðarinnar með getnaðarvörnum og fósturdeyðingum. Kirkjunnar menn hyggjast gefa út DVD disk sem kynnir málstað hennar og safna einni milljón undirskrifta gegn frumvarpinu sem þeir segja að gangi gegn lífsgildum. [Tengill]
Asianews.it - Róm. Ofsóknirnar gegn kristnum í Orissa á Norð-Austur Indlandi eru að fjara út en svæðinu er lokað og aðeins stjórnarerindrekar og lögreglumenn fá að fara þangað. Allt sem merkt var krossi virðist hafa verið ráðist á. Ofsóknirnar brutust út í kjölfar morðs á róttækum hindúaleiðtoga en hann var veginn af skæruliðum kommúnista.
.jpg)
Þrátt fyrir það brutust út að því er virðist skipulagðar ofsóknir gegn kristnum í héraðinu. Engin ríkisstjórn hefur fordæmt ofbeldið. Aðeins örfáir ráðamenn hafa gert það svo sem utanríkisráðherra Ítalíu. Ráðamenn í Páfagarði hafa bent á að þetta sé ein birtingarmynd kristnifælni sem leitast við að afneita kristinni arfleifð. Margir friðarsinnar og félagasamtök sem gjarnan eru fljótir til að vernda aðra hópa, minnihlutahópa eða dýr í útrýmingarhættu hafa kosið þögnina í þetta skipti. Hugsanlega óttast þeir að á bakvið ásakanir róttækra hindúa um sálnaveiðar kristinna liggi sannleikskorn. Ítalskir biskupar hafa boðað að morgundagurinn 5. september skuli vera helgaður bænum og föstum fyrir kristnum í Orissa. [Tengill]
Catholicculture.org - Bangalore. 10 milljóna stúlknafæðinga er saknað úr fæðingartölum á Indlandi. Einkasjúkrahús framkvæma kyngreiningu fóstra þrátt fyrir bann stjórnvalda. Samkvæmt siðum Hindúa getur faðir ekki orðið hólpinn nema sonur veiti honum síðustu smurningu og kvöð um heimanmund fyrir stúlkur gerir að verkum að stúlknafóstur eru frekar deydd. Nýlega kom upp mál þar sem grunur leikur á að ung stúlka hafi verið myrt af því hún neitaði að láta deyða stúlkufóstur sem hún gekk með. [Tengill]
Asianews.it - Delhi. Biskuparáðstefna Indlands tók þá ákvörðun að loka öllum kaþólskum skólum í mótmælaskyni við ofbeldi gegn kristnum í Orissa. Þetta eru meira en 25.000 skólar og fóru nemendur þeirra og kennarar í mótmælagöngur. .jpg)
Bæði hófsamir hindúar sem og múslimar hafa fordæmt ofbeldið. Samkvæmt nýjustu fregnum eru 12 manns látnir og tveir alvarlega særðir. 41 kirkja var eyðilögð, hundruð heimila, fjögur klaustur, fimm gisti- og unglingaheimili, sex kaþólskar sjálfboðaliðastofnanir voru eyðilagðar, hundruð bíla og aðrar persónulegar eigur fólks í óeirðunum sem róttækir hindúar stóðu fyrir.
[Tengill]
Kaþólska kirkjublaðið greinir frá því að Pétur Burcher Reykjavíkurbiskup hafi skipað séra Patrick Breen staðgengil biskups (vicar general) í Reykjavíkurbiskupsdæmi og sóknarprest í Krists konungs sókn í Reykjavík frá og með 1. september nk. Séra Patrick verður settur í þessi embætti í messu í Dómkirkjunni í Landakoti næsta sunnudag 31. ágúst kl. 10.30. Séra Patrick Breen er fæddur 28. október árið 1951 í Dublin á Írlandi. Hann tók próf í raunvísindum frá University College í Dublin og stundaði síðan nám við St. Patrick's College í Thurles frá 1978-1983. Hann var vígður prestur 11. júní 1983 í Thurles til Reykjavíkurbiskupsdæmis. Séra Patrick var aðstoðarprestur í Maríukirkjusókn í Breiðholti frá 1984-1988. Hann var umsjónarmaður (administrator) sóknarinnar í Landakoti frá því í júlí 1988 til júlí 1998. Sóknarprestur var hann í Hafnarfjarðarsókn frá júlí 1998 - maí 2000 en frá árinu 2000 og þangað til í ágúst á þessu ári var hann sóknarprestur í Akureyrarsókn.
Kaþólska kirkjublaðið, 18. árg, 9 tbl. bls. 2.
Asianews.it - Manila. Rosales kardínáli í Manila hyggst skrifa bréf til biskupa og múslimaklerka og hvetja þá til að stuðla að viðræðum milli stríðandi fylkinga í deilu stjórnarinnar við MILF skæruliðahóp herskárra múslima á suðurhluta eyjanna. Kardínálinn sagði að misklíð ætti að jafna á friðsaman hátt og hann bætti við að lögmál stríðsins væri í mótsögn við sérhvert form siðmenningar og væri fjarlægt hinum trúuðu, hvaða trúarbrögð sem þeir aðhylltust. [Tengill]
Asianews.it - Bubaneshwar. Síðustu tvo daga hefur vargöld ríkt í Orissa á Indlandi í kjölfar morðs á róttækum leiðtoga hindúa Swami Laxananda Saraswati. Kaþólsk nunna var brennd lifandi af hópi róttækra hindúa sem réðust á munaðarleysingjahæli sem hún rak í Bargarh (Orissa). Prestur sem þar var staddur brenndist einnig og er nú á sjúkrahúsi. Annarri nunnu var hópnauðgað áður en kveikt var í hælinu. Óstaðfestar fréttir eru um að á öðrum stað hafi einn prestur verið særður og tveim öðrum rænt. [Tengill]
CWNnews.com - Hanoi. Í Hanoi hefur sprottið upp deila um 15 ekrur af landi sem Redemptorist reglan keypti 1928. Kommúnistastjórnin hefur smátt og smátt tekið landið eignarnámi af reglunni. Í síðustu viku keyrði um þverbak þegar hundruð lögreglumanna mættu á svæðið, hentu um koll styttum og reyndu að eyðileggja altari sem þar hafði verið komið fyrir. Þeir urðu að hopa eftir að þúsundir kaþólskra mættu á svæðið.
[Tengill]
Catholicnews.com - Washington. Hæstiréttur Kaliforníu dæmdi nýlega lesbíu í hag sem stefndi lækni fyrir að vilja ekki aðstoða hana við tæknifrjóvgun. „Enginn á rétt á að fara fram á aðgerð sem ekki er lífsnauðsynleg frá einhverjum sem finnst hún siðferðilega röng“ sagði Thomas J. Curry biskup í Los Angeles í kjölfar úrskurðarins. [Tengill]
Asianews.it - Pakistan. Tveim kristnum stúlkum í Punjab héraði var rænt 16. júní sl. af hóp múslima. Daginn eftir var önnur þeirra þvinguð til að giftast og að gerast múslimi. Ættingjar stúlknanna ætla að reyna að fara dómstólaleiðina til að ná þeim aftur en búist er við miklum andbyr.
[Tengill]
Tíu manns gengu í pílagrímsgöngu Lífsverndar frá Maríukirkju í Breiðholti til Kristskirkju í Landakoti laugardaginn 16. ágúst sl. Tilgangur göngunnar var að biðja fyrir ófæddum börnum. Á leiðinni var rósakransbænin beðin. Gangan tók tæplega þrjá klukkutíma. Í Kristskirkju var sungin messa og blessaði kaþólski biskupinn fólkið í lok hennar. Lífsvernd hefur skipulagt svona göngur á hverju ári síðan 2004.
Cwnews.com - Ítalía. Kaþólskt tímarit á Ítalíu olli nýlega fjaðrafoki vegna ritstjórnargreinar þar sem sagt var að aðgerðir Ítalíustjórnar í málefnum ólöglegra innflytjenda væru 'afturhvarf til fasisma'. Talsmaður kirkjunnar benti í kjölfarið á að tímaritið væri hvorki málpípa Páfastóls né ítölsku biskuparáðstefnunnar. Meðal aðgerða sem ríkisstjórnin hefur gripið til er að senda 3000 hermenn inn í ítalskar borgir til að reyna að stemma stigu við glæpaöldu. Einnig hefur verið boðað að nýir og áhrifaríkir brottvísunarverkferlar verði innleiddir sem og að refsingar verði þyngdar fyrir brot á innflytjendalöggjöfinni. [Tengill]
Catholicnews.com. Klaustur frá 6. öld í eyðimörk Vestur-Sýrlands gefur ferðamönnum tækifæri til að upplifa trúaranda fornaldar. Klaustrið er heitið eftir hl. Móses, eþíópskum munki. Mar Musa klaustrið er uþb. 30 km. frá næsta þorpi. Þar starfa prestar og nunnur úr kaþólsku kirkjunni og réttrúnaðarkirkjunum. Þar er einnig miðstöð viðræðna við múslima. [Tengill]
Asianews.it - Khalil Samir islamsfræðingur Asianews.it skrifaði nýlega pistil þar sem hann rakti ýmis teikn sem benda til aukinar þíðu í samskiptum trúarbragðanna. Þar má nefna ráðstefnur í Madríd og Mekka sem haldnar voru á þessu ári sem og opnanir nýrra kirkna í Quatar og Kuvait. [Tengill]
Asianews.it. Benedikt páfi XVI tilkynnti í dag í tilefni af hátíð uppnumningar Maríu meyjar (15. ágúst) að eftir einn mánuð myndi hann halda til Lourdes í Frakklandi til að minnast 150 ára afmælis birtinga meyjarinnar þar. „Uppnumning Maríu hjálpar okkur að bera vitni vonar og huggunar í heimi þar sem „falskur fögnuður og þjáning“ ríkja. [Tengill]
Asianews.it. Þrátt fyrir alþjóðlega gagnrýni á kínsversk stjórnvöld þess efnis að þau ritskoði Internetið sæta trúarleg vefsetur þar í landi enn tálmunum. Sérstaklega gildir þetta um kaþólsk vefsetur sem og vefsetur Falun Gong samtakanna. Pistlahöfundur Asianews skrifar að trúin sé leiðin til einsktaklingsins og þá leið vilji Kínastjórn ekki fara. [Tengill]
Asianews.it - Jakarta. Séra Susetyo ritara viðræðunefndar indónesísku biskuparáðstefnunnar var rænt af heimili sínu af ókunnum aðilum og honum misþyrmt. Hann er núna á sjúkrahúsi. Hann hefur verið áberandi í viðræðum trúarhópa sem róttækir múslimar eru lítt hrifnir af. [Tengill]
Asianews.it - Filippseyjar. Meira en 800 skæruliðar Moro frelsishers islam (MILF) hafa hertekið 15 þorp kristinna í Norður-Cotabato héraði á Mindanao, stærstu eyju Filippseyja. Stjórnarher Filippseyja hefur hafið gagnárás á skæruliðana. Um 20 manns eru fallnir og meira en 130 þús. eru á flótta bæði kristnir og múslimar. Rauði krossinn hefur hafið sendingar á lyfjum, mat og drykkjarvatni til svæðisins. [Tengill] Nýlega hafnaði hæstiréttur Filippseyja samkomulagi sem stjórn Filippseyja gerði við skæruliðasamtökin. Ágreiningur er því um landamæri sjálfsstjórnarsvæðis múslima. Biskupar kaþólsku kirkjunnar hafa gagnrýnt að efni samkomulagsdraganna skyldi ekki hafa verið birt almenningi.
Asianews.it. Jakarta. Í Jayapura, höfuðborg indónesísku Papúa hafa meira en 3500 kristnir mótmælt upptöku sharia laga í héraðinu. Orðrómur er um að sharia verði komið á en mótmælendurnir halda fram að héraðið njóti sjálfsstjórnar og slík lög verði ekki innleidd nema með samþykki héraðsbúa. Í Padang höfuðborg Vestur-Súmötru minnir ástandið æ meir á íslamskt ríki. Kvenstúdentar sem ekki bera slæðu eru gjarnan reknir tímabundið úr skóla. Ákvæði frá 2005 um að virða skuli reglur islam er látið gilda fyrir aðra en múslima. Upptaka sharia líkra lagaákvæða í héruðum Indónesíu sést æ oftar og ríkisstjórnin hefur ekki staðið í vegi fyrir því þrátt fyrir mótmæli frá trúarlegum minnihlutahópum sem og mannréttindahópum. [Tengill1] [Tengill2]
Síðustu athugasemdir