Varanlegur tengill 19.04.09 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 89 orð, 457 innlit
Flokkur: Fósturvernd, Kristindómur og stjórnmál, Unborn children – abortion

Obama heiðursdoktor í kaþólskum háskóla?

Mikil umræða er nú meðal kaþólskra manna í Bandaríkjunum vegna ráðagerða stjórnar Notre Dame-háskólans kaþólska að veita Barack Obama Bandaríkjaforseta heiðursdoktorsgráðu í lögfræði. Þykir mörgum þetta skjóta skökku við vegna þeirrar afar hörðu fósturdeyðingastefnu sem hann hefur fylgt af fremsta megni allt frá því að hann sat á löggjafarþinginu í Illinois. Nánar verður fjallað um þetta mál hér á síðunni, þegar tími gefst til.

Varanlegur tengill 16.04.09 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 552 orð, 182 innlit
Flokkur: Fósturvernd, Kirkjan um vernd fjölskyldu og barna, þ.m.t. ófæddra, Siðferði og samfélag, Unborn children – abortion

Páfagarður hafnar sendiherrum sem taka afstöðu gegn lífinu

Páfagarður hefur hafnað þremur sendiherraefnum, sem stjórn Baracks Obama hefur lagt til. Var sagt frá þessu í lok hádegisfrétta Ríkisútvarpsins í dag. Meðal þessara þriggja hafi verið Caroline Kennedy, dóttir hins kaþólska Johns F. Kennedy, fyrrum Bandaríkjaforseta. Páfagarður mun hafa hafnað þessum þremur sem sendiherraefnum "vegna afstöðu þeirra til fóstureyðinga," eins og segir í fréttinni.

Við könnun á málinu má rekja það til frétta frá Írlandi og Ítalíu.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 05.04.09 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 181 orð, 109 innlit
Flokkur: Fósturvernd, Siðferði og samfélag, Unborn children – abortion

Dauðapilla gegn lífinu – hér á Íslandi?!

"Þvert gegn landslögum hafa nýlega upp fundnar aðferðir til deyðingar fósturs allt að níu vikna gömlu* verið innleiddar hér í verki af þeim, sem hvorki er sýnt um að bera slíkar ákvarðanir undir þing né þjóð. En þeir, sem láta sig þetta mál varða, munu ekki láta það yfir þjóð okkar ganga, að það fái ómótmælt framgang, andstætt bæði lögum okkar og siðferði." Þannig reit undirritaður í þessari vefgrein: Fósturdráp í heimahúsum? Ný árás á málstað lífsins, 5. jan. 2008 (með umræðum á eftir), og fekk hún yfir 900 heimsóknir þann daginn. Henni var fylgt eftir með annarri grein: Dauðapillan RU486 og löglaus notkun hennar (einnig á Moggabloggi höfundar, 6. jan. 2008); mjög athyglisvert og fréttnæmt efni er að finna á báðum vefslóðunum.

Vert er að halda þessum skrifum til haga hér og fylgjast grannt með því, hvort enn sé verið að halda þessari dauðapillu að íslenzkum konum. –JVJ.

Varanlegur tengill 30.03.09 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 283 orð, 468 innlit
Flokkur: Málefni samkynhneigðar á sviði þjóðfélags og kirkju

Andtrúarróttæklingar höfðu hálfan sigur á landsfundi undarlegra 'íhaldsmanna'

Hér var fyrir helgina rætt um róttæka tillögu lausungarhyggjumanna (líberalista) í drögum að ályktun fjölskyldunefndar Sjálfstæðisflokksins. Annað tveggja alvarlegustu atriðanna þar, þ.e.a.s. að svipta presta hjónavígslurétti, var fjarlægt úr tillögunni í meðförum fjölskyldunefndar (á morgunfundi á föstudag), en úrslitin urðu þó ekki endanlega ljós, fyrr en sú meðferð málsins var staðfest af sjálfum landsfundinum.

Áfram er þó keyrt á það, að ein og söm hjúskaparlög skuli lögtekin fyrir bæði homma og lesbíur eins og fyrir venjuleg hjón. Verði þetta einhvern tímann að veruleika á hinu háa Alþingi – þrátt fyrir sáralitla ásækni samkynhneigðra í staðfestingu samvistar (frá árinu 1996) – þá má búast við því, að landsmönnum verði þaðan í frá uppálagt að tala um 'hjónabönd' samkynhneigðra og um slík pör sem hjón. Alltjent myndi það þá komið inn í alla lagabálka, sem snerta hjónabandið, ennfremur í skólabækur o.s.frv.

Öll færslan... »

Barizt um hjónabandið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins

Mjög alvarleg tillaga var hluti af drögum að ályktun fjölskyldunefndar Sjálfstæðisflokksins, sem fyrir lágu, þegar landsfundur kom saman í fyrradag. Tvenns konar árás á kristinn sið og kristin gildi felst í þeim:
1) að hjónavígsluréttur verði tekinn af kirkjum og trúfélögum; 2) að hjónabandið verði formlega "afkynjað" – látið ná jafnt yfir hjónaband karls og karls eða konu og konu eins og hið náttúrlega hjónaband karls og konu. Að þvílík tillaga komi fram á flokksþingi þeirra, sem íhaldssamastir eru taldir á stjórnmálasviðinu, sýnir ljóslega, hversu alvarlega er sótt að kristnum grundvallargildum á þeim vettvangi.

Á landsfundinum er uppi virkt og vonandi árangursríkt varnarstarf gegn þessari tillögu, en endanleg ákvörðun fundarins verður þó ekki ljós, fyrr en allsherjarfundur hinna 1900 landsfundarfulltrúa hefur tekið afstöðu til tillagna þessarar róttæku fjölskyldunefndar.

Drögin eru þannig:

Öll færslan... »

Kristnir málefnahópar í stjórnmálaflokkunum

Nú er stefnt að stofnun þeirra í öllum flokkum og framboðum. Sá fyrsti er nýlega til orðinn í Frjálslynda flokknum, og leiðir hann hinn góðkunni Guðsteinn Haukur Barkarson. Í Sjálfstæðisflokknum hefur verið unnið að stofnun slíks hóps frá 7. febrúar, með útsendu bréfi til ýmissa kristinna flokksmanna, sem birt var áðan í þessari vefgrein: Hvatningarbréf um stofnun kristins málefnahóps í Sjálfstæðisflokknum. Vísast hér með til ýtarlegrar greinargerðar fyrir þessu máli í því bréfi. Þið, sem áhugann hafið, vísið öðrum á þetta eða áframsendið það! En nú er Sjálfstæðisflokks-fólkið í slíkum málefnahópi einmitt að fara að hittast fyrir landsfundinn, sem hefst síðdegis á morgun.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 10.03.09 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 594 orð, 319 innlit
Flokkur: Fósturvernd, Siðferði og samfélag, Stofnfrumurannsóknir og tæknifrjóvgun (IVF)

Kardináli fordæmir ákvörðun Obama forseta að afturkalla bann við stofnfrumurannsóknum á nýjum fósturvísum

Forseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær, að hann hafi aflétt banni Bush yngra forseta við því, að ríkisfé sé notað til rannsókna og nýtingar stofnfrumna úr frumfóstrum. Samdægurs kom viðbragð frá Justin Rigali kardinála:

"Ný stjórnvaldstilskipun (executive order) Obama forseta um fósturvísis-stofnfrumurannsóknir er hryggilegur sigur stjórnmála yfir vísindum og siðfræði.

Öll færslan... »

Spennandi fyrirlestur um hinn afar útbreidda kristindóm í Asíu í fornöld og á miðöldum

Fagnaðarefni er, að Ólafur Haukur Árnason, sagnfræði- og latínunemi, hyggst deila með okkur þekkingu sinni og rannsóknum á útbreiðslu kristninnar í Asíu, allt til Kyrrahafs og Indlandshafs og lengst inn í Mið-Asíu, ekki nú á dögum, heldur strax í fornöld og á miðöldum. Þar kemur bæði kaþólska kirkjan, sú orþódoxa og ýmsar frávikskirkjur, einkum Nestoringa, við sögu.

Það er mörgum eins og óvænt opinberun að lesa um þróttmikið starf kirkjunnar í Asíu langt fram á miðaldir, en þarna var vagga kristindómsins, við Miðjarðarhafið. Þaðan breiddist hún ört út austur á bóginn, með ótrúlegum árangri, meðan okkar "gamla Evrópa" var lengi vel að miklu leyti heiðin nema í suðlægustu löndum, á Spáni, Suður-Gallíu, Ítalíu og Grikklandi eða réttara sagt austrómverska keisaradæminu.

Fyrirlesturinn hefst kl. 20, mánudaginn 9. marz, að Hávallagötu 16, í safnaðarheimili kaþólsku kirkjunnar. Kaffihlé verður og veitingar og öllum frjálst að bera fram fyrirspurnir og leggja þar sitt til málanna.

Ólafur Haukur Árnason á mjög góða grein um þetta efni: 'Róm og Bagdad: Kristin trú í Asíu á tímum mongólska heimsveldisins', í nýútkomnu hefti af Merki krossins, tímariti kaþólsku kirkjunnar, en þrátt fyrir nafn þeirrar greinar spannar hún í raun yfir miklu víðtækara svið í tíma og rúmi, frá fornöld og til trúboðsferða kaþólskra manna á miðöldum.

Ólafur hefur á ýmsum vettvangi sýnt sig að vera efnilegur ...

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 15.02.09 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 207 orð, 302 innlit
Flokkur: Siðferði og samfélag, Kristindómur og stjórnmál

Rætt um kristindóm og stjórnmál á Omega

Þáttur um þetta efni, m.a. um fyrri tilþrif kirkjunnar á sviði þjóðfélagsmála og hvort kristnir menn nú á dögum eigi að gefa sig í stjórnmálabaráttu, var frumbirtur á Omega-sjónvarpsstöðinni á fimmtudag og í endursýningum áfram, í 5. sinn (það síðasta í bili) í dag, þriðjudag, kl. 13:00. Þar sit ég, Jón Valur Jensson guðfræðingur, fyrir svörum í hálftíma þætti hjá Guðsteini Hauki Barkarsyni, þekktum Moggabloggara, sem nýlega gekk í Íslensku Kristskirkjuna.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 15.02.09 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 193 orð, 136 innlit
Flokkur: Trúarbrögð í innbyrðis samskiptum og við veröldina, Kenning kaþólskrar kirkju

Bergmál af vindmyllubaráttu veraldarvanra blaðamanna við meinta Gyðingaandúð Rómarkirkjunnar

Undarlegur er lesturinn í Morgunblaði þessa sunnudags, en þangað hefur bergmálið borizt af málflutningi nokkurra veraldarhyggju-fjölmiðla. Nú er Karl Blöndal ritstjóri mjög vandaður penni og treystir ekki að óreyndu fjölmiðlum eins og Der Spiegel og International Herald Tribune, en ætti að gera sér grein fyrir því, að meirihluti vestrænnar blaðamannastéttar tekur afar tortryggna og ekki ósjaldan neikvæða afstöðu gagnvart páfadæminu og jafnvel hinni kaþólsku kirkju.

Grein Karls: 'Býsnavetur Benedikts', geldur þess, að heimildir hans eru einhliða og illa upplýstar um kaþólska kenningarhefð. Því hefur honum missýnzt í þessu efni og veitzt erfitt að láta hinn gagnrýnda Benedikt páfa njóta sannmælis og viðurkenningar sakleysis síns gagnvart ásökunum sumra Gyðinga vegna fáránlegrar afstöðu eins biskups til fjöldamorðanna á Gyðingum á valdatíma nazismans.

Ásökunarefnin á hendur páfanum í þessari grein, sem og ályktanirnar, eru í senn þyngri og léttferðugri en svo, að við þeim verði þagað. Því má vænta hér meiri skrifa um málið.

Varanlegur tengill 08.12.08 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 1988 orð, 275 innlit
Flokkur: Biblíufræði

"Ég segi yður: ef þessir þegja, munu steinarnir hrópa"

Það er eins og sumir kristnir menn ímyndi sér, að það að lifa kristnu trúarlífi eigi að vera eitthvað settlegt og pent og að alls ekki megi hafa hátt! En þegar farið er í Biblíulykilinn frábæra (Hið ísl. Biblíufélag, Rvík 1984, 1692 bls.) eða orðaleit á biblian.is, þá kemur nú í ljós, að það er hið eðlilegasta mál fyrir þá, sem hafa lifandi trú, að hrópa upp, bæði í áköllum til Guðs um miskunn og hjálp (fjöldi dæma) og í vitnisburði um hans máttarverk (Lúk. 1.42) og til að kalla menn til trúar (dæmi: Jóh. 1.15: "Jóhannes vitnar um hann og hrópar: "Þetta er sá sem ég átti við þegar ég sagði: Sá, sem kemur eftir mig, hefur verið á undan mér, því að hann var fyrri en ég“").

Sjálfur Jesús hrópar, ekki aðeins við andlát sitt (Mt. 27.50), heldur og í boðun sinni þegar hann kallaði: "Hver sem eyru hefur að heyra, hann heyri" (Lúk. 8.8), og hann hrópar á Lazarus að koma út úr gröf sinni (Jóh. 11.43), og þessi orð hrópaði hann: "Sá, sem trúir á mig, hann trúir ekki á mig, heldur á þann sem sendi mig; og sá, sem sér mig, hann sér þann, sem sendi mig. Ég er ljós í heiminn komið, til þess að hver, sem á mig trúir, sé ekki í myrkrinu ..." o.s.frv. (Jóh. 12.44 o.áfr.).*

Hættum að vera settleg og pen og feimin við að hrópa!

----

Þetta var innlegg mitt hjá Þórarni bloggvini mínum, á þarfri vefsíðu hans. Hugleiðum aðeins frekar þessi mál. Það má heita síendurtekið þema í Gamla testamentinu, að hinir trúuðu, sem í nauðum eru staddir, hrópi til Guðs um hjálp. Allir lesendur Davíðssálma kannast við þetta (t.d. í hinum magnaða 107. sálmi). Í Sálmunum kemur orðið 'hrópa' 40 sinnum fyrir, þar af aðeins tvisvar í neikvæðri merkingu (40.16, 70.4) og tvisvar um hróp þeirra, sem enga hjálp fá vegna ranglætis síns (18.42). En samtals kemur orðið 128 sinnum fyrir í Gamla testamentinu og 45 sinnum í því Nýja (þessum stöðum til viðbótar eru margir aðrir, þar sem orðið 'kalla' er notað). Hér eru nokkrir dæmigerðir textar og ýmsir hinna þekktari:

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 25.11.08 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 743 orð, 437 innlit
Flokkur: Ljóð og kvæði / Poetry, Kirkjusaga, íslenzk, Úr lífi og starfi kirkjunnar, Kaþólskir Íslendingar

Jón Arason á aftökustaðnum

Þrátt fyrir meint frjálslyndi sitt í trúarefnum og jafnvel únitarisma* framan af var hinn mikli skáldjöfur Matthías Jochumsson (1835–1920) afar jákvæður gagnvart kaþólskri trú og kirkju, þar með talið trúararfi hennar hér á landi. Öðrum samtímamönnum fremur í Þjóðkirkjunni lúthersku átti hann giftudrjúgt samstarf við kaþólsku kirkjuna, og sér þess umfram allt stað í ljóðakverinu Kaþólskir sálmar, sem útgefið var fyrir 100 árum, í Reykjavík 1908, 63 bls. að stærð. Það var að öllu leyti hans þýðingarverk, þótt hans væri þar ekki getið sem þýðanda; mun hann sjálfur hafa viljað halda því leyndu.

Margt af sálmunum í þessu ljóðakveri er enn sungið við raust í kaþólskum kirkjum landsins, m.a. á stórhátíðum.** Meðal sálmanna þar er Hljóða nótt, heilaga nótt, sem við kaþólskir syngjum um jólin í stað Heims um ból, sem er ekki jafn-nákvæm þýðing Sveinbjarnar Egilssonar á sama sálmi. En söguástundun var Matthíasi einnig í blóð borin (sbr. rit hans Smáþættir um byggingu Íslands og vora fornu siðmenningu, Rv. 1913), og þar kom hann eins og Jón Sigurðsson forseti sannarlega auga á það, hve persóna Jóns biskups Arasonar rís yfir flestar aðrar í sögu okkar og sjálfstæðisbaráttu. Leikrit hans Jón Arason, harmsöguleikur í fimm þáttum, kom út hjá Ísafold árið 1900. Leikritið gerist allt árið 1550, á Hólum, Alþingi, í Skálholti, aftur á Hólum, á Sauðafelli og lokaþátturinn í Skálholti. Í leikverkinu eru allnokkur ljóð, en þetta, sem hér fer á eftir, er sjálfstætt ljóð og segir mikla sögu.

Jón Arason á aftökustaðnum

Allir orð mín heyri,
eg vil kveða' og syngja,
grípa lands míns gígju,
gamla skapið yngja.
Hátt í hinzta sinni
hljómi málið goða;
yfir svik og sorgir
slæ ég morgunroða.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 13.09.08 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 78 orð, 721 innlit
Flokkur: Fósturvernd, Siðferði og samfélag, Unborn children – abortion

Greinar sem snerta lífsverndarmál

Rétt er að benda á eftirfarandi nýlegar greinar mínar sem taka með einum eða öðrum hætti á lífsverndarmálunum í samtíð okkar.

Hvað má sýna unglingum – sannleikann eða fela hann?

Dauðarefsing ófæddra; eða eru þau partur af móðurinni?
og (um varaforsetaefni demókrata): Joe Biden höfðar ekki sterkt til trúaðra kaþólikka nema síður sé! (allkröftug umræða þar um lífsverndarmál).

Varanlegur tengill 29.07.08 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 160 orð, 463 innlit
Flokkur: Trúarleg ljóð JVJ

Bróðir spyr kristinn bróður um leiðina

"Hvort fær sál mín himnavist?"
– "Hlýddu á Krist,
sem bauð þér boðskap sannan:
Skuldið ekki neinum neitt
nema það eitt
að elska heitt hver annan.
"

"Hvernig breyti ég bezt við mann?" *
– "Biblían
þig fræðir um Föðurins vilja.
Lausnarann eina lít þar á,
og létt er þá
í skini trúar að skilja."

(Máske er þessu smáljóði frá fyrri nótt ólokið, enda er því of orðfátt!)
* Aths.: Honum nægir ekki að vita, að hann eigi að elska náungann. Hvernig hann eigi að gera það, hver sé rétt breytni gagnvart fólki í ýmsum flóknum atvikum (sem menn greinir oft á um), það vill hann vita. Hinn vísar honum á boðorð Guðs í Ritningunni, dæmisögur og fyrirmynd Frelsarans og að upplýsing trúar og samvizku – og kærleikurinn sjálfur – veitist sem Andans gjöf þeim sem gefast undir Guðs vald og vilja.

Varanlegur tengill 22.06.08 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 945 orð, 856 innlit
Flokkur: Úr lífi og starfi kirkjunnar, Kaþólskir Íslendingar

Tveir merkir, kaþólskir prestar okkar látnir

Skyndilega, í sömu vikunni, eru tveir af fremstu mönnum meðal presta okkar á seinni hluta 20. aldar burt kallaðir, til betri heims, eins og hin staðfasta von trúarinnar kennir okkur. Þeir eru séra Sæmundur Vigfússon og séra Georg (f. August George); var sá síðarnefndi þjóðkunnur sem kraftmikill skólastjóri Landakotsskóla um 34 ára bil, 1964–98, en einnig sem staðgengill biskups frá 1969. Þessara merku manna verður nú minnzt hér nokkrum orðum.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 07.05.08 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 88 orð, 471 innlit
Flokkur: Ýmis skáld

Trúarleg ljóð eftir Ólöfu frá Hlöðum

Ólöf frá Hlöðum (1857-1933) var trúuð kona og leitandi í senn. Hún var meðal fyrstu kvenna á Íslandi til að gefa út ljóðabók. Ritsafn hennar (úrval þó) hef ég undir höndum og sé þar ýmsar perlurnar. Hyggst ég birta þær á Moggabloggi mínu, og er fyrst þeirra hið íhugandi, átakafulla og einlæga ljóð Leitin að guði; sjá einnig þessa vefsíðu um Ólöfu sjálfa, með einu smáljóði. Fleiri munu svo væntanlega birtast þar, í efnisflokki mínum Ljóð.

Varanlegur tengill 29.04.08 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 318 orð, 769 innlit
Flokkur: Fósturvernd, Siðferði og samfélag, Unborn children – abortion

Mynd af 10 vikna fóstri vekur bæði athygli og "óánægju"

Mynd þessi af deyddu fóstri hefur heldur betur valdið fjaðrafoki síðustu daga:

Mynd af 10 vikna deyddu fóstri

Kröfur um ritskoðun eða refsingu fyrir að birta þessa mynd á Moggabloggi mínu 27. apríl hafa komið fram og ekki aðeins á vefslóð minni þar. Hvers eiga ófædd börn að gjalda, að ekki megi sýna í reynd meðferðina á þeim af hendi fósturdeyðingalækna? Á að fela sannleikann? Á að láta undan þeim, sem vilja banna þetta mikilvæga tjáningarfrelsi, þótt það sé notað í þeim einum tilgangi að halda uppi málsvörn fyrir saklaust, varnarlaust mannslíf sem sætir ofsókn í samfélagi okkar og í flestum löndum heims?

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 03.04.08 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 1208 orð, 265 innlit
Flokkur: Stofnfrumurannsóknir og tæknifrjóvgun (IVF)

Frumvarp um tilraunir og gernýtingu á fósturvísum samþykkt eftir sáralitlar umræður á Alþingi Íslendinga

Það er með þungum hug, sem upplýsa verður lesendur Kirkjunetsins um þá hryggilegu staðreynd, að róttækt frumvarp um árásir á fósturvísa mætti engri mótspyrnu á Alþingi og var afgreitt þaðan endanlega mánudaginn 31. marz. Ekki einn einasti þingmaður sá sóma sinn í því að standa gegn frumvarpinu, og höfðu þó ýmsir andmælt því, m.a. herra Karl biskup Sigurbjörnsson með góðum rökum og fleiri sem sendu um það umsagnir ...

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 08.03.08 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 100 orð, 398 innlit
Flokkur: About our website. Kirkju.net, Bænamál, Miðaldasaga og kirkjan, Skólaspekin

Bæn heil. Tómasar frá Aquino

Sit, Jesu dulcissime, sacratissimum corpus tuum et sanguis dulcedo et suavitas animae, salus et sanctitas in omni tentatione, gaudium et pax in omni tribulatione, lumen et virtus in omni verbo et operatione, et finalis tutela in morte.
Megi hinn alhelgi líkami þinn og sætleiki blóðs þíns, blíðasti Jesú, vera yndi sálar minnar, hjálpræði og heilagleiki í sérhverri freisting, fögnuður og friður í sérhverri raun, ljós og styrkur í hverju orði og verki og hinzta vernd mín á dauðastundinni.

Tekið af vefsetrinu Corpusthomisticum.org, sem inniheldur verk Thómasar.
Varanlegur tengill 01.01.08 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 352 orð, 178 innlit
Flokkur: Úr lífi og starfi kirkjunnar, Kaþólskir Íslendingar

Gleðilegt ár! – og af frumkvæði Nonna í sjúkrahúsmálum

Lesendum Kirkjunetsins færum við óskir okkar um blessun Guðs á nýju ári, frið og hjálpræði öllum mönnum til handa.

Í nýbirtri Moggabloggs-grein eftir Gunnar Skúla Ármannsson er sagt frá athyglisverðum þætti séra Jóns Sveinssonar, Nonna, í heilsugæzlumálum hérlendis. Ugglaust þekkja margir kaþólskir til þessa, en vert er að þetta varðveitist hér ásamt með vísan til framhalds hjá höfundinum.

Nonni 150 ára og Landspítalinn
Jón Sveinsson eða Nonni er 150 ára um þessar mundir. Allir þekkja bækur hans og glæstan ritferil. Ég var að lesa um daginn Landspítalabókina sem Gunnar M. Magnússon tók saman. Þar kemur fram að Nonni hafði safnað fé í Evrópu til að byggja holdsveikraspítala á Íslandi. Áður en til þess kom að nýta samskotafé Nonna höfðu danskir Oddfellowar tekið verkið að sér. Þennan sjóð fengu síðan St. Jósefssystur til að byggja Landakotsspítala sem opnaður var 1902. Sjóður Nonna gerði þeim kleift að reisa spítalann á mettíma og þannig ná forystu í spítalarekstri á Íslandi.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 16.12.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 433 orð, 297 innlit
Flokkur: Úr lífi og starfi kirkjunnar

Habemus episcopum!*

Hjartanlega fögnum við Kirkjunetsmenn tilkomu nýs biskups kaþólskra á Íslandi, herra Péturs Bürcher, en hann var settur inn í embætti í Kristskirkju í gær. Var athöfnin öll hin hátíðlegasta og naut þar m.a. fagurs kórsöngs Karmelsystra í Hafnarfirði. Kirkjan var skreytt fánaborðum Vatíkansins, Kaupmannahafnarbiskup gegndi þar leiðandi hlutverki, og einnig var okkar fráfarandi biskup, herra Jóhannes Geijsen, meðal þeirra helztu, sem töluðu, en þar voru fleiri biskupar viðstaddir (þótt veður hamlaði, að nokkrir kæmust í tæka tíð) og allnokkur fjöldi presta og reglufólks, þ.e. kaþólskra systra af ýmsum reglum og munka frá klaustrinu í Reyðarfirði. Ennfremur voru þar, auk fullrar kirkju leikmanna, biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, herra Geir H. Haarde forsætisráðherra, a.m.k. tveir aðrir meðlimir ríkisstjórnarinnar og borgarstjóri Reykjavíkur. En Reykjavíkurbiskup er hið opinbera starfsheiti herra Péturs Bürcher.

Maðurinn sjálfur er afar ljúfmannlegur, laus við öll stíf formlegheit, það sást vel á hans brosmildu framgöngu í prócessíu um dómkirkjuna og þegar hann vék af leið sinni til að klappa á kollinn á litlu barni sem stóð þar hjá.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 01.12.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 360 orð, 383 innlit
Flokkur: Kristindómur og menning, Kaþólskir Íslendingar

Jón Sveinsson, Nonni, í lifandi myndum!

Allir, sem þekkja Nonna af hinum elskuðu bókum hans, munu hafa fundið til nýrrar, óvæntrar og fagnaðarríkrar tengingar við hann, þegar hann birtist á kvikmyndarbút í Kastljósþætti í gærkvöldi. Það var eins og að fá aftur að sjá gamlan, nákominn ættingja eftir langar fjarvistir. Og jafnvel þótt hann stæði fyrst allfjarri (en síðar í nærmynd) og væri á þessum myndum greinilega kominn á efstu ár, þá leyndi sér ekki hlýja hans, andleg reisn og hvernig hann dró ósjálfrátt til sín bæði börn og fullorðna.

Ég gladdist í hjarta mínu, gamli Nonnastrákurinn, sem las bækur hans upp til agna og get þakkað foreldrum mínum það, að þau keyptu fyrir mig allt ritsafn hans í 12 bindum, það sem þá var fáanlegt. Að því bjó ég sem barn. Hversu mikið er það, sem þessi óvenjulegi maður hefur gefið svo ótalmörgum!

Kvikmyndabúturinn varðveittist í Valkenburg í Hollandi. Gömul, þýzk kona hafði vitað af honum í búi foreldra sinna og sagði frá honum við komuna í Nonnasafn á Akureyri. Í Kastljósþættinum skýrði Brynhildur safnvörður frá því, að nýlega hefði þeirri sömu konu tekizt að finna upptökuna á háalofti húss síns og að hún hefði látið breyta henni í DVD-disk. Og nú er hann kominn til Akureyrar, reyndar einungis um 10 mínútna myndskeið (sem ekki var allt sýnt í Kastljósinu), en afar mikils virði fyrir alla unnendur þessa frábæra rithöfundar. Þetta verður ein gersemin, sem hinir fjölmörgu safngestir, flestir erlendir, geta átt aðgang að í Nonnasafni til frambúðar.

Es wurde hier erzählt, daß neulich ein (der einzige) Film mit dem Verfasser Nonni, Vater Jón Svensson, in Holland entdeckt ist und auf dem isländischen Fernsehen gestern abend kundgetan. Der Film währt um 10 Minuten und wird mit dem Schätzen des Nonni-Museum in Akureyri (Nordisland) bewahrt und den tausenden jährlichen Gästen dargestellt. Es war dem heutigen Schreiber ein herzlich Wiedersehen, diesen wunderbaren Film des Nonni zu betrachten.

Varanlegur tengill 21.10.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 1191 orð, 685 innlit
Flokkur: Málefni samkynhneigðar á sviði þjóðfélags og kirkju, Siðferði og samfélag, Biblíufræði

Samkynhneigðramál í brennidepli á nýhöfnu Kirkjuþingi

Lúthersk Þjóðkirkja heldur nú sitt Kirkjuþing, frá laugardegi til næstu helgar, og þar gætu úrslit ráðizt um afstöðuna til kröfugerðar um hjónavígslu eða staðfestingu samvistar samkynhneigðra frammi fyrir ölturum þeirrar kirkju. Ýmislegt hefur birzt í fjölmiðlum þar að lútandi, fréttir, viðtöl og greinar, og vil ég sérstaklega nefna ágæta Morgunblaðsgrein Steinunnar Jóhannesdóttur rithöfundar og innlegg hennar í Silfri Egils og kvöldfréttum Rúv í gær. Þá hef ég sjálfur skrifað allnokkuð um þessi mál síðustu daga á Moggabloggi mínu, þ.e. pistlana: "Samvizkufrelsi presta virt" – en hve lengi? 19. okt., Rangt þýdd vers í nýrri Biblíuútgáfu (þ.e. í ritum Páls postula, þar sem hann leggur blátt bann við samkynja kynmökum), Samkynhneigð o.fl. henni tengt: yfirlit fræðsluefnis, rannsókna, hugvekja og umræðna á Kirkju.net, og nýjast: Á að fordæma 'kynvillu' eða taka þátt í útvötnun boðskapar Biblíunnar eða einfaldlega halda sér við rétta merkingu hennar?

Hér er tengill beint inn á hljóðupptöku á fyrri umræðu Kirkjuþings í dag um tillögu biskups Íslands um samkynhneigðramálin, með framsögu hans fyrst (smellið á bláu línuna!) o.s.frv.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 17.05.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 697 orð, 1763 innlit
Flokkur: Fósturvernd

Verður kyngreining ófæddra til að fjölga fósturdeyðingum?

Þær fréttir berast utan úr heimi, að fundnar hafi verið upp aðferðir, sem með 98% vissu geti greint kynferði 6 vikna fósturs í móðurkviði. Sjá þessa grein á Vísir.is og í Fréttablaðinu í dag: Kyn fóstra greint eftir sex vikur. Vitað er, að fóstur hafa oft verið deydd á grundvelli þess, að vitað var um kyn þeirra, en nú er hætt við, að slíkt færist mjög í aukana með þessari aðferð til að þefa uppi kynferðið. Efnishyggjan gengur vísast á lagið til að hafa sitt fram, það getur hún í þessari föllnu veröld, en okkur ber að sporna gegn því með öllum sæmilegum ráðum sem á okkar færi eru. Mikilvægt atriði í því efni er að upplýsa um eðli fóstursins, útlit þess og hæfileika. Hér ber t.d. að benda á, að þrátt fyrir að fóstrið á myndinni á Vísis-vefsíðunni virðist ekki ýkja þroskað, er geysihraður þroskaferill í gangi á þeim vikum, og 8 vikna er það með afar mennskt útlit á allan hátt. Hér er því ástæða til að vísa til stærri mynda og betri á vefsíðu Lífsverndar. Hér sjást 7–12 vikna fóstur sýnd á litmyndum, sem segja sína miklu sögu, og síðan fleiri myndir, allt að sex mánaða aldri fósturs.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 11.05.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 414 orð, 273 innlit
Flokkur: Fósturvernd, Kristindómur og stjórnmál

Rætt um kristin gildi og áherzlur í aðdraganda kosninga

Afar tær rödd lífsverndarhyggju í innleggi konu nokkurrar, sem Anna heitir, heyrðist á Útvarpi Sögu í dag (en eitthvað átti útvarpsstjórinn þar erfitt með að meðtaka boðskapinn). Í viðtalinu komu fram hjá Önnu þessari skýr dæmi um misbeitingu starfsmanna heilbrigðiskerfisins og hörmulega framkvæmd fósturdeyðingalaganna. Sá þáttur er endurfluttur um kl. 23.50 í kvöld (og líklega aftur seinnipartinn á sunnudaginn).

Allnokkuð hefur verið rætt og skrifað í vefpistlum um atriði sem snerta kristindóm og stjórnmál upp á síðkastið, og hef ég sjálfur tekið þátt í því.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 25.04.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 41 orð, 312 innlit
Flokkur: Málefni samkynhneigðar á sviði þjóðfélags og kirkju, Biblíufræði

"Sleppum Biblíunni – notumst við nútímamódelin"!

Merkilegt er, hvernig tvöfaldur doktor í guðfræði, sérstakur Lúthers-sérfræðingur, Sigurjón Árni Eyjólfsson, getur haldið Prestastefnu-erindi, Þjóðkirkjan og staðfest samvist, án þess að vitna nokkurn tímann í eitt einasta vers í Biblíunni!

Varanlegur tengill 23.04.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 84 orð, 246 innlit
Flokkur: Málefni samkynhneigðar á sviði þjóðfélags og kirkju

Nú vill 41 Þjóðkirkjuprestur bylta kristinni kenningu með því að gifta kynhverfa!

Fyrir liggur tillaga 41 prests á Prestastefnu Íslands, sem hefst á morgun, um að Þjóðkirkjan afli sér "heimildar" frá hinu veraldlega valdi til að gifta samkynhneigða! Um þetta er fjallað í grein minni á Moggablogginu í kvöld – sjá einnig fleiri greinar þar (með því að skoða niður síðuna og síðan smella á: Næsta síða – eða með því að smella á línur í listanum yfir "nýlegar greinar" í dálkinum vinstra megin; sá listi nær þó aðeins yfir 15 nýjustu pistlana).

Varanlegur tengill 15.04.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 2264 orð, 398 innlit
Flokkur: Málefni samkynhneigðar á sviði þjóðfélags og kirkju, Siðferði og samfélag, Kenning kaþólskrar kirkju

Landsfundur Sjálfstæðismanna leggur á ráðin um grófa ríkisíhlutun í innri málefni kirkjunnar

Sú frétt var að berast af landsfundi stærsta stjórnmálaflokksins, að þar hafi verið samþykkt sú ályktun, að "forstöðumönnum trúfélaga skuli gert heimilt að staðfesta samvist samkynhneigðra." Hér er hlutazt til um kenningarleg málefni kirkjunnar, reynt að veita prestum veraldlega "heimild" til að gera það, sem Heilög Ritning fyrirbýður öllum kristnum mönnum að ljá máls á. Með þessu, ef hrint verður í framkvæmd á Alþingi, rýfur ríkisvaldið grið á kirkjunni, ryðst inn á hið andlega svið með kröfur veraldarhyggjunnar, leggur þrýsting á kirkjur landsins og gefur í skyn, að "forstöðumenn trúfélaga" hafi vald til að gera eitthvað, sem þau sem trúarsamfélög hafa aldrei samþykkt að taka í mál og ekki samrýmist grundvelli kristinnar trúar.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 11.04.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 628 orð, 324 innlit
Flokkur: Tekinn púls á fjölmiðlum, Kristindómur og menning

Spaugstofumenn þurfa – og fá – gagnrýni

Það er engum blöðum um að fletta, að Spaugstofumenn hafa með þáttum sínum í Sjónvarpinu aflað sér ástsældar meðal þjóðar sinnar. Þeim mun óþægilegra er að verða vitni að því, þegar þeir ganga yfir mörk velsæmis. Það gerðu þeir nýlega í meðferð sinni á þjóðsöngnum, sem snúið var upp á Alcan í stað Guðs ! Ekki var það í fyrsta sinn sem þeir hafa umgengizt heilagleikann óvirðulega, eins og menn minnast vegna eins þáttar þeirra fyrir fáeinum árum um páska. Einnig nú tókst þeim að skopast að útdeilingu sakramentisins, og var lágt risið á því "gríni". Birgir G. Albertsson kennari gerði þetta að góðu umræðuefni í Velvakanda Mbl. í gær:

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 28.03.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 608 orð, 215 innlit
Flokkur: Fósturvernd, Siðferði og samfélag, Kristindómur og stjórnmál

Kristin stjórnmálasamtök – kristinn flokkur?

Þann 9. marz hófst á vefsvæði Morgunblaðsins birting greina á vefsetri nýrra, kristinna stjórnmálasamtaka. Pistlarnir eru ekki birtir undir nafni (heldur K1, K2, K3 o.s.frv.), en nú þegar er þar samt ýmislegt áhugavert að finna, eins og sjá má á yfirskrift greina á borð við Hver er þessi flokkur kristinna lífsgilda?, Sé fjölskyldan sterk, munu aðrir þættir þjóðfélagsins eflast, Friðun og verndun (um nauðsyn fósturverndar) og Gjöldum varhug við frumvarpi um tilraunir á stofnfrumum. (Vel að merkja var það frumvarp ...

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 17.03.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 1230 orð, 195 innlit
Flokkur: Siðferði og samfélag

Fellið vændismálið! - Opið bréf til þingheims og dómsmálaráðherra

Háttvirtir alþingismenn, hæstvirtir ráðherrar, sér í lagi dómsmálaráðherrann.

Er það í alvöru ætlan ráðherrans og stuðningsmanna hans að láta þingmál nr. 20 (frumvarp til laga um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (kynferðisbrot)) ganga í gegnum þingið á þessum lokadegi þess? Á svo gott sem að lögleiða vændi á Íslandi? Þau verða einmitt áhrif frumvarpsins,

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 05.03.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 97 orð, 310 innlit
Flokkur: Samkirkjuhreyfingin

Sameinast Þjóðkirkjan kaþólsku kirkjunni?

Um það var m.a. rætt í Silfri Egils í gær, og um það efni á ég nú alllanga grein á þessari Moggabloggsíðu minni og vísa hér með til hennar. En í Bretlandi og hinu alþjóðlega biskupakirkjusamfélagi (Anglican Church) er nú rætt af nokkurri alvöru (og að gefnum mörgum tilefnum) um hugsanlega sameiningu þess við kaþólsku móðurkirkjuna. Þjóðkirkjupresturinn Baldur Kristjánsson hefur nú gerzt opinber málsvari þess, að hans eigin kirkja "sameinist undir merkjum páfans í Róm." Þetta eru nokkur tíðindi, bræður og systur.

Varanlegur tengill 28.02.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 439 orð, 210 innlit
Flokkur: Fósturvernd, Siðferði og samfélag, Kristindómur og stjórnmál

Að farga fóstri til að koma í veg fyrir vansælt líf síðar meir?

"Ég hef séð of mörg börn vansæl vegna þess að foreldrarnir hugsa ekki nógu vel um þau, viljum við virkilega bæta á þann fjölda?" Þannig spyr ung kona í langri umræðu um fósturdeyðingar á annarri vefsíðu í gær. Þetta svar birtist þar í gærkvöldi:

Kannski ekki endilega, en viljum við SAXA Á ÞANN FJÖLDA? Um það snýst spurningin á þessari vefsíðu.

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 22.02.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 273 orð, 225 innlit
Flokkur: Úr lífi og starfi kirkjunnar, Kirkjusaga nýaldar, alþjóðleg

Ekki er allt sem sýnist – af fráfalli Vesturlanda frá Guðstrú

Hafi kristin trú staðið höllum fæti hér í álfu fyrir þremur áratugum, um það leyti sem andkristin löggjöf um fósturdeyðingar var keyrð í gegn í flestum vestrænum ríkjum, þá hefur ástandið ekki skánað í þeim efnum, eins og við ættum flest að vita. Í Sovétveldinu voru virkir kristnir menn ofsóttir, en þeim er ekki (ennþá) stungið í fangelsi fyrir vitnisburð sinn meðal þessarar þjóðar, þótt hitt tíðkist í æ meira mæli, að þeir séu hæddir og affluttir í orðum á vefsíðum og í fjölmiðlum. En lítum nú til upprifjunar og íhugunar á smápistil úr Kirkjuritinu, tímariti Prestafélags Íslands, í 3. hefti þess 1975, í erlendum fréttaþætti ritstjórans, þess mæta manns sr. Guðmundar Óla Ólafssonar í Skálholti:

"Guði sé lof fyrir járntjaldið!"

Öll færslan... »

Varanlegur tengill 10.02.07 Skrásetjari: Jón Valur Jensson, 243 orð, 206 innlit
Flokkur: Fósturvernd

Þjóðaratkvæðagreiðsla um fósturdeyðingar í Portúgal

Ingimar Karl Helgason fréttamaður var með fréttaauka í hádegisfréttum Rúv í dag um hina boðuðu atkvæðagreiðslu um frumvarp um fósturdeyðingar, sem lögð verður fyrir allan almenning á morgun, á þeim Drottins degi. Í lengra máli verður fjallað um þetta efni í Laugardagsþættinum á Rás 1 (sem stendur yfir kl. 1.00–1.50). Ekki sýnist mér þó líklegt, að sú umfjöllun verði hlutlæg eða tillitssöm gagnvart kristinni afstöðu í málinu, því að sérstakur viðmælandi Ingimars Karls verður þar Mariana Mencherao [1], sem leggur áherzlu á, að kaþólska kirkjan sé klofin í þessu máli. Það gengur þvert á það, sem bezt verður vitað um afstöðu kirkjunnar til lífsverndar hinna ófæddu. [2]

Öll færslan... »

Skoðunartölur

Meira efni eftir Jón Val Jensson er að finna hér: [Tengill]

Leit

free blog software