« Guð hefur eitthvað sérstakt í huga fyrir hvert okkar | Í meira lagi heimskur! » |
Til er saga um mann og konu sem áttu tal saman. Konan var kristin en
maðurinn ekki. Maðurinn spurði konuna hvort hún færi ætíð að vilja Guðs.
"Já" svaraði hún, "mér er skylt að gera það sem Guð almáttugur leggur fyrir mig".
"Gott og vel," sagði maðurinn. "En hvað myndir þú gera ef Guð segði þér að stökkva yfir þennan háa vegg þarna? Mundir þú stökkva?"
"Auðvitað stykki ég" sagði konan.
"En það er ómögulegt," sagði maðurinn. "Hvernig færir þú að því? Þessi múr er allt of hár til að þú getir stokkið yfir hann."
"Ef Guð ætlaðist til þess af mér," svaraði konan, "þá væri það mitt hlutverk að stökkva en hlutverk Guðs að sjá til þess að ég gæti það!"
Guð krefst aldrei neins af okkur, sem okkur er um megn.