« Gloria eftir Vivaldi„Fæðing Drottins“ »

Hl. Thomas Becket

Varanlegur tengill29.12.09. Skrásetjari: Ragnar Geir Brynjólfsson, 278 orð, 98 innlit.
Flokkur: Helgir menn

Hl. Thomas Becket

Hl. Thomas Becket (f. 1118) var erkibiskup Kantaraborgar frá 1162 til dauðadags, 29. desember 1170. Hann er dýrlingur og píslarvottur Rómversk-kaþólsku kirkjunnar sem og Anglíkönsku kirkjunnar. Hann var mikill vinur Hinriks II. konungs Englands en eftir að Thomas varð biskup spruttu upp deilur milli þeirra.

Öll færslan

Víg Thomasar Becket

Misskilin orð Hinriks II. sem hann lét falla í reiði urðu til þess að fjórir riddarar héldu til Kantaraborgar og réðu erkibiskupinum bana í Kantaraborgardómkirkju. Vígið olli mikilli hneykslan um alla hina kristnu Evrópu og var þegar litið svo á að um píslarvætti væri að ræða. Alexander páfi III. tók Thomas í tölu heilagra árið 1173. Konungurinn reyndi að bæta fyrir brot sitt með opinberri píslargöngu um götur Kantaraborgar að gröf píslarvottsins árið 1174.

Gröfin varð fljótt einn helsti pílagrímastaður Englands á miðöldum. Síðasta ferð Becket til Kantaraborgar var frá Southwark í London og því varð þessi spölur milli borganna tveggja vinsæl pílagrímaleið einkum vegna þess að sama aflát og ívilnanir af kirkjunnar hálfu fengust fyrir hana og ef farið var til erlendra pílagrímastaða svo sem Santiago de Compostela, landsins helga eða Rómar. Hinar kunnu Kantaraborgarsögur eftir Chaucer frá lokum 14. aldar eru sagðar fram af hópi pílagríma sem ferðast þessa leið.

Árið 1220 voru jarðneskar leifar dýrlingsins settar í skrín í hinni þá nýbyggðu Þrenningarkapellu (Trinity Chapel). Samkvæmt fyrirmælum frá Hinriki VIII. voru jarðneskar leifar dýrlingsins eyðilagðar árið 1538 og lagt bann við því að minnst yrði á hann.

Bandaríska skáldið T.S. Eliot byggði á sögunni um Thomas Becket þegar hann samdi verkið Murder in the Cathedral. Texti sem Eliot var beðinn að fjarlægja úr verkinu var síðar birtur í kvæðinu Burnt Norton.

RGB tók saman. Heimildir: The Penguin Dictionary of Saints. Butler's Lives of the Saints. Concise Edition og WikiPedia.

Engin viðbrögð við þessari færslu ennþá...

Leggja inn athugasemd


Tölvupóstfangið verður ekkisýnt á síðunni.

Vefslóðin þín verður sýnd.
(Línubrotum breytt í <br />)
(Name, email & website)
(Allow users to contact you through a message form (your email will not be revealed.)
Önnur blogg sama höfundar: [ragnargeir.blog.is]
[ragnargeir.blogspot.com]

Leit

multiple blogs